.
Orlofsíbúð í  Sólheimum 23, Reykjavík

Verð fyrir félagsmenn er 7.000 kr. p/sólarhring eða 31.000 kr. p/viku.

Íbúðin er þriggja herbergja, þ.e. tvö svefnherbergi annað með tveimur kojum með fjórum svefnstæðum og í þeim eru góðar dýnur. Auk þess er herbergi með hjónarúmi. Í stofunni er líka tvíbreiður sófi sem einnig er hægt að sofa í. Einnig er í íbúðinni smábarna rúm (ferðarúm). Í stofunni er  sófasett og borðstofuborð og stólar.

Eldhúsið er búið öllu því nauðsynlegasta sem við á og þar er lítill borðkrókur með borði og stólum,einnig er þar góður ungbarnastóll. Snyrtingin er með baði, einnig er hengi þar þannig að hægt er að nýta baðið sem sturtu. Í forstofu er góður fataskápur og eins eru góðir skápar og skúffur í hjónaherbergi.

Bannað er að vera með gæludýr með sér í íbúðinni, einnig eru reykingar stranglega bannaðar.

WC pappír,eldhúsrúlla og hreinlætisvörur hverskonar eru fyrir hendi og ef eitthvað af því vantar þá hafið samband við umsjónarmann okkar sem býr í Sólheimum 23. Ef fólki finnst eitthvað vanta, til dæmi í leirtau eða eitthvað slíkt er það vinsamlega beðið að láta vita á Skrifstofu Stéttarfélagana.

Myndir frá orlofsíbúð STH í Sólheimum 23, Reykjavík





Deila á