„Það er eiginlega alveg klikkað veður og búið að spá því sama eða jafnvel verra á morgun, Gamlársdag. Svo það vart ekki hundi út sigandi, hvað þá að vera að ýta fjölskyldufólki, gömlu og ungu, út í almenningshlaup. Það er lítið vit í því,“ segir Ágúst Sigurður Óskarsson einn af skipuleggjendum Gamlárshlaupsins á Húsavík. Read more „Slæmt veður á Húsavík“
Hugleiðingar um áramótin
Þá er lokið síðasta fundi ársins hjá Framsýn stéttarfélagi en sjómenn innan félagsins héldu aðalfund deildarinnar síðasta fimmtudag. Almennt hefur starfsemi og rekstur félagsins gengið vel á árinu. Starfsgreinasamband Íslands, sem Framsýn á aðild að ásamt 18 öðrum stéttarfélögum, gerði úttekt á starfsemi aðildarfélaga sambandsins í haust. Innan Starfsgreinasambandsins eru um 50.000 félagsmenn. Úttektin er afar glæsileg fyrir Framsýn og jafnframt ánægjuleg fyrir félagsmenn. Read more „Hugleiðingar um áramótin“
Jólasveinarnir í heimsókn – myndband
Á dögunum litu jólasveinarnir úr Dimmuborgum í heimsókn. Urðu miklir fagnaðarfundir með þeim og starfsmönnum skrifstofunnar. Stöldruðu þeir bræður við dágóða stund, fengu sér kaffi og með’ðí og tóku eitt lítið lag sér og öðrum til mikillar gleði. Líklega flokkast lagið seint sem jólalag en skemmtilegt engu að síður! Read more „Jólasveinarnir í heimsókn – myndband“
Krefja LÍÚ um kjarasamning strax
Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar var haldinn í gærkvöldi. Að venju var fundurinn málefnalegur og góður. Auk venjulegra aðalfundarstarfa urðu miklar umræður um kjaramál sjómanna, starfsmenntamál, sjómannafsláttinn, viðbótarálögur á útgerðina og framkomu LÍÚ í garð sjómanna sem hafa verið samningslausir í tvö ár. Read more „Krefja LÍÚ um kjarasamning strax“
Sjómenn munið fundinn í kvöld
Mývatnssveitin heimsótt – myndband
Á dögunum voru starfsmenn Framsýnar á ferðinni. Dagurinn hófst á skólaakstri hjá Fjallasýn, litið við hjá Söginni og Garðyrkjustöðinni á Hveravöllum. Því næst var haldið til Mývatnssveitar þar sem atvinnurekendur voru heimsóttir og svo komið við á Laugum. Vart þarf að taka fram að Mývatnssveitin skartar sínum fegursta vetrarbúningi. Read more „Mývatnssveitin heimsótt – myndband“
Heimsókn í Heimabakarí – myndband
Á dögunum heimsótti starfsmaður Framsýnar Heimabakarí á Húsavík, eitt besta bakarí landsins þó víða væri leitað. Þar hefst vinnudagurinn árla nætur og handtökin mörg. Þingeyingar eru líklega vanari því að standa fyrir framan afgreiðsluborðið en innan þess svo hér gefur að líta skemmtilegar svipmyndir frá starfseminni. Read more „Heimsókn í Heimabakarí – myndband“
Ljós og friður í kirkjugörðum landsins
Margir hafa lagt leið sína um jólahátíðina í kirkjugarða landsins. Meðfylgjandi mynd er úr kirkjugarðinum á Húsavík en þangað hafa fjölmargir farið til að minnast ástvinna með kerti og friðarljós eða bara til að eiga kyrrðarstund um jólin. Read more „Ljós og friður í kirkjugörðum landsins“
Fjölbreyttur matseðill í fjárhúsinu á aðfangadag
Það er ekki bara að mannfólkið geri vel við sig í mat og drykk um jólin heldur gera bændur víða um land einnig vel við sinn búpening í tilefni jólanna. Við gerðum okkur ferð með formanni Framsýnar, Aðalsteini Á. Baldurssyni, í fjárhúsið eftir lokun skrifstofunnar í dag en skrifstofa stéttarfélaganna var opin fram að hádegi. Read more „Fjölbreyttur matseðill í fjárhúsinu á aðfangadag“
Börn og barnabörn koma til Húsavíkur
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar tók vel í að svara jólaspurningum frá lesendum SPYR. http://spyr.is/grein/vidtol-pistlar/1298
Myndband frá jólaboði stéttarfélaganna
Um síðustu helgi var jólaboð stéttarfélaganna á Húsavík haldið í sal stéttarfélaganna. Að vanda var vel mætt og ýmis skemmtiatriði í boði. Hér má sjá myndbrot úr boðinu.
Read more „Myndband frá jólaboði stéttarfélaganna“
Skötuilmur á Húsavík
GPG- Fiskverkun á Húsavík stóð fyrir árlegri skötuveislu í dag. Fyrirtækið rekur m.a. öfluga starfsemi á Húsavík og á Raufarhöfn. Starfsmenn fyrirtækisins á Húsavík ásamt nokkrum góðum gestum komu saman í hádeginu og borðuðu skötu, saltfisk og alls konar góða fiskrétti. Þá var einnig boðið upp á góða drykki með góðgætinu. Hér koma nokkrar myndir frá veislunni sem fór vel fram. Read more „Skötuilmur á Húsavík“
Kísilmálmverksmiðja til umræðu
Magnús Magnússon sérfræðingur sem komið hefur að undirbúningi á uppbyggingu Kísilmálmverksmiðju á Húsavík kom við á Skrifstofu stéttarfélaganna í gær til að fræða starfsmenn stéttarfélaganna um verkefnið og stöðu þess. Read more „Kísilmálmverksmiðja til umræðu“
Börnin til fyrirmyndar en alþingismennirnir…..
Það voru þrír fjallmyndarlegir jólasveinar sem komu í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna í dag. Það voru þeir Hurðaskellir, Skyrgámur og Þvörusleikir en heimili þeirra er í Dimmuborgum í Mývatnssveit. Þeir sögðust hafa verið á ferðinni síðustu daga og komið víða við, sérstaklega væri ánægjulegt að koma á jólatréskemmtanir þar sem væri yfirleit fullt af góðum og þægum börnum. Read more „Börnin til fyrirmyndar en alþingismennirnir…..“
Konfekt og hamingja
Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, kom við hjá starfsfólki Flugfélagsins Ernis í síðustu viku og færði þeim konfekt frá félaginu með þakklæti fyrir ákvörðun flugfélagsins um að hefja áætlunarflug milli Reykjavíkur og Húsavíkur. Ljóst er að flugið skiptir Þingeyinga og aðra þá sem þurfa að ferðast til og frá svæðinu verulega miklu máli enda hafa um 6.200 farþegar ferðast með flugfélaginu frá upphafi en áætlunarflugið hófst sunnudaginn 15. apríl 2012. Read more „Konfekt og hamingja“
Kveðja Húsavík með miklum söknuði
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum hafa í gegnum tíðina myndað gott samband við erlent vinnuafl á félagssvæðinu. Um þessar mundir eru væntanlega um 200 erlendir starfsmenn við störf í Þingeyjarsýslum. Ekki er óalgengt þegar viðkomandi einstaklingar yfirgefa landið að þeir komi við á Skrifstofu stéttarfélaganna og þakki fyrir sig og aðstoðina sem þeir hafa fengið hjá stéttarfélögunum. Read more „Kveðja Húsavík með miklum söknuði“
Vantar þig orlofsíbúð í Kópavogi yfir jólin?
Skóbúðin 70 ára – myndband
Á dögunum fagnaði Skóbúð Húsavíkur 70 ára afmæli. Jóna Matt formaður Deildar verslunar- og skrifstofufólks Framsýnar leit við ásamt fleirum og færði Oddfríði og fjölskyldu blómvönd af því tilefni. Hér má sjá svipmyndir úr heimsókninni. Read more „Skóbúðin 70 ára – myndband“
VÞ kemur VA til aðstoðar
Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur ákveðið að leggja Verkalýðsfélagi Akraness lið í málarekstri félagsins vegna hugsanlegs ólögmætis verðtryggingar með því að styrkja málareksturinn með fjárframlagi. Read more „VÞ kemur VA til aðstoðar“