Félagar í Framsýn samþykktu kjarasamninginn við sveitarfélögin

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 17 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir starfsmenn sveitarfélaga liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta.

Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 16 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 3. til 10. febrúar. Í heildina var kjörsókn 32,83%. Já sögðu 80,55% en nei sögðu 16,33%. 3,12% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá þessara 17 aðildarfélaga SGS voru 4.197 manns.

Innan Framsýnar voru 275 á kjörskrá. Alls kusu 128 eða 46,55% félagsmanna á kjörskrá.  Já sögðu 120 eða 93,75%, nei sögðu 7 eða 5,47%, auðir 1 eða 0,78%. Kjarasamningurinn skoðast því samþykktur hjá Framsýn stéttarfélagi með miklum meirihluta.

Deila á