Aðalfundur Framsýnar fimmtudaginn 4. júlí kl. 20:00

Aðalfundur Framsýnar stéttarfélags verður haldinn fimmtudaginn 4. júlí kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Til fundarins er boðað samkvæmt lögum félagsins.

Dagskrá:
1.Venjuleg aðalfundarstörf ◦Félagaskrá
◦Skýrsla stjórnar
◦Ársreikningar
◦Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga
◦Kjör í stjórnir, nefndir og ráð
◦Kosning löggilts endurskoðana/endurskoðunarskrifstofu
◦Lagabreytingar
◦Ákvörðun árgjalda
◦Laun aðalstjórnar, trúnaðarmannaráðs, nefnda og stjórna innan félagsins

2. Önnur mál

Tillögur sem liggja fyrir aðalfundinum frá stjórn og trúnaðarráði félagsins eru aðgengilegar inn á heimasíðu félagsins, framsyn.is

Athygli er vakin á 32. grein laga félagsins – Ráðstöfun úr sjóðum félagsins:
„Tillögur stjórnar, trúnaðarmannaráðs og félagsmanna um meiriháttar ráðstöfun úr sjóðum félagsins sem bornar eru upp á aðal- eða félagsfundi til samþykktar, skal lýst í fundarboði. Berist slík tillaga eftir fundarboð, er hún tæk fyrir fundinn hafi hún borist stjórn félagsins með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir boðaðan fund. Skal þá stjórn félagsins fjalla um tillöguna og láta hana liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn í a.m.k. 5 virka daga.“

Í lok fundar verður boðið upp á kaffiveitingar og smá glaðning. Skorað er á félagsmenn að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðu um starfsemi félagsins og komandi verkefni á næstu árum.

Deila á