Dagsetning aðalfundar Starfsmannafélags Húsavíkur

Aðalfundur Starfsmannafélags Húsavíkur verður haldinn mánudaginn 8. júlí 2019 kl. 20:00 í fundasal stéttarfélaganna.

Dagskrá:

    1. Venjuleg aðalfundarstörf
      a )   Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins síðastliðið ár
      b )   Lagðir fram til úrskurðar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár
      c )   Tekin ákvörðun um árgjöld félagsmanna
      d )   Lagabreytingar, enda hafi tillögur til breytinga borist stjórn félagsins tveimur vikum fyrir aðalfund
      e )   Kosning stjórnar samkvæmt 6. grein
      f )   Kosning endurskoðenda samkvæmt 6. grein
      g )   Kosning fulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
      h )   Kosning fulltrúa á þing B.S.R.B.
      i )   Kosning fulltrúa í orlofs-, ferðamála- og starfskjaranefnd
    2. Framtíð STH
    3. Önnur mál

Skorað er á félagsmenn til að mæta á fundinn og taka þátt í störfum félagsins. Boðið verður upp á kaffi, meðlæti og skemmtiatriði. Koma svo!

Stjórn STH

Deila á