Aðalfundur Þingiðnar mánudaginn 1. júlí

Aðalfundur Þingiðnar verður haldinn mánudaginn 1. júlí kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Til fundarins er boðað samkvæmt lögum félagsins.

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Ársreikningar
  4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
  5. Lýst kjöri í trúnaðarstöður í félaginu
  6. Lagabreytingar
  7. Ákvörðun árgjalda
  8. Laun stjórnar
  9. Kosning löggilts endurskoðanda

2. Önnur mál         

Í lok fundar verður boðið upp á kaffiveitingar. Skorað er á félagsmenn að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðu um starfsemi félagsins og komandi verkefni á næstu árum.

Athygli er vakin á 24. grein laga félagsins – Ráðstöfun úr sjóðum félagsins:
„Tillögur stjórnar, trúnaðarmannaráðs og félagsmanna um meiriháttar ráðstöfun úr sjóðum félagsins sem bornar eru upp á aðal- eða félagsfundi til samþykktar, skal lýst í fundarboði. Berist slík tillaga eftir fundarboð, er hún tæk fyrir fundinn hafi hún borist stjórn félagsins með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir boðaðan fund. Skal þá stjórn félagsins fjalla um tillöguna og láta hana liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn í a.m.k. 5 virka daga.“

Tillögur sem liggja fyrir aðalfundi Þingiðnar 2019:

 Tillaga 1: Löggiltur endurskoðandi félagsins

Tillaga er um að endurskoðunarfyrirtækið PWC sjá um endurskoðun á ársreikningum félagsins fyrir árið 2019.

Tillaga 2: Um félagsgjald

Tillaga stjórnar er að félagsgjaldið verði óbreytt milli ára, það er 0,7% af launum.

Tillaga 3: Fræðslusjóður Þingiðnar

Tillaga stjórnar er að fræðslusjóðsgjaldið verði óbreytt milli ára, það er 0,3% af launum.

Tillaga 4: Ráðstöfun á tekjuafgangi

Tillaga er um að tekjuafgangi ársins verði ráðstafað til hækkunar á óráðstöfuðu eigin fé frá fyrra ári.

Tillaga 5: Laun stjórnar

Tillaga er um að laun stjórnar með óbreytt milli ára. Það er þrír tímar á yfirvinnutaxta iðnaðarmanna samkvæmt kjarasamningi Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins.

Tillaga 6: Úthlutun úr sjúkrasjóði félagsins

Tillaga er um að starfsmenn félagsins sjái um úthlutanir úr sjúkrasjóði í umboði stjórnar Þingiðnar milli aðalfunda.

 

Deila á