„Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!“ verður yfirskrift kvennafrídagsins 24. október næstkomandi. Heildarsamtök stéttarfélaga, hvetja konur til að leggja niður vinnu klukkan 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samkomur/samstöðufundi víða um land.
„Síðastliðið ár hafa frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum undirstrikað að brýnt sé að tryggja öryggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði. Nú er nóg komið, konur eiga að vera óhultar heima og óhultar í vinnu!“ segir í frétt á vef BSRB.
Sjötta skiptið sem konur ganga út
Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn 24. október árið 1975 á kvennaári Sameinuðu þjóðanna. Þann dag lögðu konur um land allt niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Síðan hafa konur komið saman og krafist kjarajafnréttis og samfélags án ofbeldis fjórum sinnum, 1985, 2005, 2010 og 2016.
Konur eru því hvattar til að sameinast á kvennafrídeginum og krefjast breytinga. „Hættum að breyta konum – breytum samfélaginu – til hins betra!“
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum og samstarfsaðilar verða með opið hús í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 Húsavík, miðvikudaginn 24. október frá kl. 14:55. Boðið verður upp á kaffi, meðlæti og jafnvel skemmtiatriði.