Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn í Menningahúsinu Hofi, Akureyri, miðvikudaginn 9. maí. sl. Mæting á fundinn var góð og fór hann vel fram. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Huld Aðalbjarnardóttir, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2017. Þá fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri yfir ársreikning sjóðsins og áritanir og tryggingastærðfræðingurinn Bjarni Guðmundsson gerði grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu. Var ársreikningur sjóðsins samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.

Einnig kynntu Arne Vagn Olsen, fjárfestingarstjóri, og Jóna Finndís Jónsdóttir, áhættustjóri, fjárfestingar- og áhættustefnu sjóðsins.

Á fundinum voru lagðar fram tillögur að breytingum á einstökum greinum samþykkta sjóðsins og gerði Einar Ingimundarson, lögfræðingur, grein fyrir þeim. Allar breytingatillögur voru samþykktar samhljóða.

Gert var grein fyrir starfskjarastefnu sjóðsins en gerð var ein tillaga um breytingu frá fyrra ári og hún samþykkt samhljóða.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs skipa í dag:

Frá launamönnum:

Huld Aðalbjarnardóttir (varaformaður), Sverrir Mar Albertsson, Særún Björnsdóttir og Tryggvi Jóhannsson.

Varamenn: Heimir Kristinsson og Sigríður Dóra Sverrisdóttir.

Frá launagreiðendum:

Erla Jónsdóttir (formaður), Kristín Halldórsdóttir, Unnar Már Pétursson og Valdimar Halldórsson.

Varamenn: Guðrún Ingólfsdóttir og Páll Snorrason.

Þá var samhljóða samþykkt tillaga að Deloitte ehf. sem löggiltum endurskoðanda sjóðsins og einnig tillaga að breytingu stjórnarlauna frá fyrra ári, í samræmi við hækkun á vísitölu.

Gögn frá ársfundinum: