Konur stjórna STH

Aðalfundur Starfsmannafélags Húsavíkur var haldinn í gærkvöldi og mættu 35 manns á fundinn sem heppnaðist mjög vel. Fundurinn var haldinn á Sölku og voru veitingarnar frábærar hjá Sölkumönnum.

Töluverðar breytingar urðu á stjórn félagsins á þann veg að Helga Þuríður Árnadóttir var kosinn formaður, Helga Eyrún Sveinsdóttir gjaldkeri, Jóhanna Björnsdóttir ritari og meðstjórnendur Guðrún Ósk Brynjarsdóttir og Berglind Erlingsdóttir. Jóhanna Björnsdóttir og Berglind Erlingsdóttir koma nýjar inn í stjórn í stað Ásu Gísladóttur og Stefáns Stefánssonar en þau gáfu ekki kost á sér áfram til stjórnunarstarfa fyrir félagið. Þau hafa lengi starfað fyrir Starfsmannafélagið og voru þeim þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. Í því sambandi má geta þess að Stefán hefur verið formaður félagins í um 20 ár.

Formannaskipti, Helga Þuríður tók við sem formaður STH í gær af Stefáni Stefánssyni sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Kristján Þór kom á fundinn og heiðraði tvo heiðursmenn, Emil Guðmundsson og Hreinn Einarsson en þeir störfuðu báðir lengi hjá Húsavíkurbæ en hafa nú látið af störfum.

Stéfan fer hér yfir skýrslu stjórnar í síðasta skiptið en hann hefur nú látið af störfum sem formaður.

Setið undir ræðu formanns.

Öðlingarnir, Emil og Hreinn, voru heiðraðir í gær fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Topp menn.

Deila á