Félagsmenn Þingiðnar samþykktu verkfallsaðgerðir

Samiðn ásamt félögum iðnaðarmanna sem eru í samstarfi um endurnýjun á almenna kjarasamningnum við Samtök atvinnulífsins, þ.e. MATVÍS, Grafía/FBM, VM, Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ samþykktu í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna heimild til verkfallsboðunar. Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.

Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44.6%.

Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k.

Já sögðu 75,1%

Nei sögðu 22,1%

Þeir sem ekki tóku afstöðu 2,8%

Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum koma framangreind verkföll til framkvæmda.

Þingiðn, félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum er aðili að Samiðn. 76% félagsmanna sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu Þingiðnar um boðun verkfalls samþykktu boðunina meðan 24% félagsmanna lagðist gegn verkfallsboðun. Fjöldi á kjörskrá var 57, fjöldi kjósenda var 25. Kosninga þátttakan var 43,86%.

Deila á