Félagar í Þingiðn greiða atkvæði um verkfall

Samiðn ásamt VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, MATVÍS, Rafiðnaðarsambandi Íslands, Grafíu –(FBM) stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum og Félagi hársnyrtisveina hafa ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun sem yrði með eftirfarandi hætti:

Tímabundið verkfall dagana 10. t.o.m 16. júní 2015 og ótímabundið verkfall sem hefst þann 24. ágúst 2015.

Verði verkföllin samþykkt munu þau taka til þeirra félagsmanna sem falla undir almennan kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og viðkomandi stéttarfélaga og sambanda. Kosning um verkfallsheimild verður rafræn og mun hefjast þann 24. maí 2015 og ljúka þann 1. Júní 2015, kl 10.00. Fulltrúar iðnaðarmanna hafa undnfarið átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga og á fundi viðræðunefndar félaganna með fulltrúum SA þann 5. maí s.l. var sýnt að viðræðurnar væru árangurslausar og tilgangslaust væri að halda þeim áfram.

Í þeim viðræðum sem staðið hafa yfir hafa iðnaðarmannafélögin lagt áherslu á að minnka vægi yfirvinnu í heildarlaunum með því að hækka dagvinnulaun svo þau dugi til framfærslu. Mikil þörf er fyrir nýliðun í greinunum en núverandi launakerfi hafa skapað starfsumhverfi sem höfðar síður til ungs fólks.

Félagar í Þingiðn munu á næstu dögum fá kjörgögn í hendur og greiða atkvæði um boðun verkfalls hjá félögum innan Samiðnar.

Deila á