Skrifað undir kjarasamninga í dag

Framsýn gekk frá nokkrum kjarasamningum í dag við atvinnurekendur á félagssvæði félagsins og voru þeir undirritaðir og kynntir starfsmönnum í dag. Kjarasamningarnir voru bornir upp og samþykktir samhljóða meðal starfsmanna þessara fyrirtækja. Starfsmenn lýstu yfir ánægju sinni með nýja kjarasamninginn sem tryggir þeim 35000 króna hækkun á mánuði auk þess sem það er tryggt að lágmarkslaun verði kr. 300.000 á mánuði árið 2017. Ekki er ólíklegt að skrifað verði undir fleiri kjarasamninga á morgun en viðræður munu standa yfir við tvö fyrirtæki í kvöld og fleiri til viðbótar hafa lýst yfir áhuga fyrir samningaviðræðum við Framsýn.

Skrifað var undir þrjá kjarasamninga í dag við atvinnurekendur á félagssvæði Framsýnar. Fleiri kjarasamningar eru í burðarliðnum. Formaður Framsýnar hefur verið á ferðinni dag milli fyrirtækja til að ganga frá kjarasamningum. Ánægja er meðal starfsmanna þessara fyrirtækja með nýja kjarasamninginn.

Deila á