Glæsileg niðurstaða – 96% félagsmanna klárir í átök

Klukkan 24:00 í gærkvöldi lauk atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls á vegum aðildarfélaga Starfsgreinasambands þar á meðal Framsýnar. Óhætt er að segja að útkoman sé glæsileg þar sem um 96% félagsmanna Framsýnar samþykkti verkfallsboðunina varðandi þá tvo kjarasamninga sem atkvæðagreiðslan náði til. Atkvæðagreiðslan var rafræn en Framsýn hefur ekki áður verið með rafræna atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls.

Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:

Almenni kjarasamningurinn/SGS og SA

Á kjörskrá 392

Kjörsókn 231 eða 58,93%

Já 222 eða 96,10%

Nei 7 eða 3,03%

Auðir 0,87%

Kjarasamningur starfsmanna í ferðaþjónustu/SGS og SA

Á kjörskrá 117

Kjörsókn 47 eða 40,17%

Já 45 eða 95,74%

Nei 2 eða 4,26%

Auður 0 eða 0%

Deila á