Miklar hækkanir á gjaldskrám leikskóla – sjá samanburð við Norðurþing

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám leikskóla og fæðis hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2014 til 1. febrúar 2015. Tíu sveitarfélög hafa hækkað hjá sér gjaldskránna, óbreytt verð er hjá fjórum og eitt hefur lækkað. Framsýn óskaði eftir að Norðurþingi væri bætt inn í samanburðinn en sveitarfélagið var ekki inn í könnun ASÍ. Leikskólar á vegum Norðurþings koma misjafnlega út eftir verðflokkum miðað við aðra leikskóla á landinu.

8 tíma vistun ásamt fæði, almenn gjaldskrá
Mikill verðmunur er á hæstu og lægstu gjaldskrá sveitarfélagana fyrir 8 tíma vistun ásamt fæði. Hæsta gjaldið fyrir þessa þjónustu er hjá Garðabæ 36.380 kr. en lægst hjá Reykjavíkurborg 25.020 kr. sem er 11.360 kr. verðmunur á mánuði eða 45%.

Mesta gjaldskráhækkunin var hjá Sveitarfélaginu Skagafirði um 8% úr 30.181 kr. í 32.597 kr. eða um 2.416 kr. á mánuði og hjá Akureyrarkaupstað hækkaði gjaldið um 6,3% úr 31.871 kr. í 33.870 kr. sveitarfélögin Garðabær, Fljótsdalshérað, Akraneskaupstaður, Sveitarfélagið Árborg og Kópavogskaupstaður hafa hækkað gjaldskránna um 2-4% en Vestmannaeyjar, Ísafjarðabær og Reykjanesbær hafa hækkað gjaldskránna um 1% eða minna. Þau sveitarfélög sem ekki hafa hækkað á milli ára eru Fjarðarbyggð, Mosfellsbær, Hafnarfjarðakaupstaður, Seltjarnarneskaupstaður og Norðurþing. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem hefur lækkað gjaldskrána en í fyrra kostaði mánuðurinn 25.880 kr. en nú 25.020 kr. sem er 860 kr. lækkun eða 3,3%, en það gera 10.320 kr. á ári í sparnað fyrir foreldra. Hér að neðan má sjá hvar Norðurþing er í samanburðinum, kemur í ljós að gjaldskráin er 34.281 kr. á mánuði sem er í hærri kantinum og töluvert meira en hjá Kópavogskaupstað sem er með lægstu gjaldskránna. En það er 5.565 kr. meira á mánuði sem er 66.780 kr. á ári sem foreldrar borga hjá Norðurþingi. (Gula súlan stendur fyrir Norðurþing)

9 tíma vistun ásamt fæði, almenn gjaldskrá
Níundi tíminn er hjá flestum sveitarfélögunum með annað tímagjald og er oftast dýrari en átta stundirnar á undan. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem hefur lækkað gjaldskránna á milli ára eða úr 38.380 kr. í 36.740 kr. sem er lækkun um 1.640 kr. eða 4,3%. Hæsta gjaldið fyrir 9 tíma vistun er hjá Fljótsdalshéraði en þar kostar mánuðurinn 44.880 kr. en lægsta gjaldið er í Skagafirði 35.324 kr. sem er 9.556 kr. verðmunur á mánuði eða 27%. Líkt og fyrir 8 tíma vistun, hefur Sveitarfélagið Skagafjörður hækkað gjaldskrána mest eða um 8% á milli ára, en sveitarfélagið er samt með lægsta mánaðargjaldið af þeim sveitarfélögum sem borin eru saman. Garðabær hefur hækkað um 4,3% úr 41.900 kr. í 43.700 kr. og hjá Akraneskaupstað hefur gjaldskráin hækkað um 3,4% og hjá Sveitarfélaginu Árborg um 2,9%. Þau sveitarfélög sem ekki hafa hækkað gjaldskrá sína fyrir níu tíma vistun ásamt fæði milli ára eru Fjarðarbyggð, Mosfellsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Seltjarnarneskaupstaður og Norðurþing. Akureyri er eina sveitarfélagið í samanburðinum sem býður ekki upp á vistun í níu klukkustundir. Í samanburði á 9 tíma vistun kemur í ljós að Norðurþing kemur ágætlega út og eru með þeim ódýrari. En mánuðurinn kostar aðeins 37.333 kr. sem eru 7.547 kr. minna en hjá Fljótdalshéraði og 820 kr. meira en hjá Mosfellsbæ. (Gula súlan stendur fyrir Norðurþing)

Forgangshópar
Allt að 82% verðmunur er á hæsta og lægsta mánaðargjaldi fyrir forgangshópa í 8 tíma vistun ásamt fæði, en lægsta gjaldið fyrir þessa þjónustu greiða foreldrar í Reykjavík 15.100 kr. en eins og áður hefur komið fram lækkaði Reykjavíkurborg gjaldskrána og nemur lækkunin fyrir forgangshóp 1,4%. Hæsta gjaldið greiða foreldrar í Norðurþingi 27.409 kr. sem er 12.409 kr. verðmunur. Kom það verulega á óvart að Norðurþing kæmi ekki betur út í þessum samanburði. (Gula súlan stendur fyrir Norðurþing)

Systkinaafsláttur er mjög misjafn milli sveitarfélaga, frá 25-75% fyrir annað barn og 50-100% fyrir það þriðja, en aðeins er veittur afsláttur af gjaldi en ekki fæði. Forgangshópar eru t.d. námsmenn, einstæðir foreldrar og öryrkjar.

Deila á