Launagreiðendum og félagsmönnum fjölgar

 

Á aðalfundi Framsýnar í gærkvöldi kom fram að félagsmönnum heldur áfram að fjölga. Á síðasta ári greiddu 2.265 félagsmenn til Framsýnar- stéttarfélags. Samkvæmt samþykkt stofnfundar félagsins frá 1. maí 2008 er ekki lengur miðað við sérstakt lágmarksgjald svo menn teljist fullgildir félagsmenn heldur teljast þeir félagsmenn sem greiða til félagsins á hverjum tíma og ganga formlega í félagið.  Um síðustu áramót voru gjaldfrjálsir félagsmenn samtals 237, það eru aldraðir og öryrkjar sem ekki eru á vinnumarkaði. Fullgildir félagsmenn eru alls 2.502. Þá má geta þess að 346 launagreiðendur greiddu til Framsýnar á síðasta ári og fjölgaði þeim um 20 á milli ára. Árið á undan greiddu 326 launagreiðendur til félagsins

Jákvæðar fréttir, félagsmönnum Framsýnar fjölgar milli ára. Það á einnig við atvinnurekendur en sífellt fleiri launagreiðendur skila gjöldum af starfsmönnum til félagsins.

Deila á