Framsýn samþykkir kjarasamning við ríkið

Talin hafa verið atkvæði vegna samkomulags um breytingar og framlengingu á kjarasamningi milli fjármála og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og  Starfsgreinasambands Íslands sem Framsýn á aðild að og reyndar Verkalýðsfélag Þórshafnar líka. Samkomulagið var undirritað 1. apríl síðastliðinn og félagar innan Starfsgreinasambands Íslands greiddu atkvæði um samkomulagið í póstatkvæðagreiðslu. Samningurinn var samþykktur með 71,5% atkvæða en kjörsókn var 30%.

Á kjörskrá: 944 félagsmenn innan Starfsgreinasambands Íslands

Talin atkvæði: 281

Kjörsókn: 29,8%

Já sögðu: 201

Nei sögðu: 75

Auðir og ógildir seðlar voru: 5

Samkomulagið telst því samþykkt með 71,5% greiddra atkvæða.

Deila á