STH skrifar undir

Formaður Starfsmannafélags Húsavíkur, Stefán Stefánsson, hefur staðið í ströngu undanfarið enda hafa staðið yfir kjaraviðræður við ríkið. Fyrir helgina var skrifað undir nýjan kjarasamning. Það gerðu starfsmannafélögin: Starfsmannafélag Fjallabyggðar,Starfsmannafélag Vestmannaeyja, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Félag opinberra starfsmanna á Húsavík, Starfsmannafélag Dala og Snæfellssýslu auk Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi.

Samningurinn nær til félagsmanna umræddra aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu. Kjarasamningurinn er sambærilegur þeim sem SFR undirritaði við Samninganefnd ríkisins á fimmtudagskvöldið.

Helstu atriði samningsins eru:

  • að laun hækki um 2,8% eða að lágmarki 8000. kr. fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Á launum sem eru lægri en 230.000 kr. á mánuði komi sérstök hækkun til viðbótar að upphæð 1.750 kr.
  • við samþykkt samningsins greiðist 14.600 kr. eingreiðsla miðað við fullt starf í febrúar 2014 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði þar sem það á við.
  • eingreiðsla 20.000 kr. miðað við þá sem eru í fullu starfi í febrúar 2015 greiðist þann 1. apríl 2015 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði.
  • persónuuppbót verður á samningstímanum 73.600 kr.
  • orlofsuppbót verður á samningstímanum 39.500 kr.
  • samningurinn mun gilda frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015

Að sögn Stefáns mun stjórn STH koma saman á þriðjudaginn og fara yfir samninginn. Þá reiknar hann með félagsfundi síðar í vikunni, væntanlega á fimmtudaginn. Fundurinn verður auglýstur síðar.

Deila á