Aðalsteinn áfram í stjórn SGS

Björn Snæbjörnsson (Eining-Iðja) var endurkjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands til næstu tveggja ára og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (Afl starfsgreinafélag) var sömuleiðis endurkjörinn varaformaður. Miðstjórn sambandsins er óbreytt en í henni sitja Aðalsteinn Á. Baldursson (Framsýn stéttarfélag) Halldóra Sveinsdóttir (Báran stéttarfélag), Kolbeinn Gunnarsson (Vlf. Hlíf), Signý Jóhannesdóttir (Stéttarfélag Vesturlands) og Sigurður Bessason (Efling stéttarfélag).

Þingið var haldið undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna og var það mál fólks að sá hafi verið andinn á þinginu en því lauk í gær. Næstu verkefni eru kjarasamningar en SGS fer með umboð sextán aðildarfélaga sinna í viðræðunum en þrjú félög innan sambandsins hafa ákveðið að fara fram sér, svokallað Flóabandalag.

Deila á