16 félög hafa veitt SGS samningsumboð

Undanfarna mánuði hefur Starfsgreinasambandið og félög þess unnið hörðum höndum við undirbúning næstu kjarasamninga. Undirbúningurinn hófst formlega síðasta vetur með kjaramálaráðstefnum sem SGS stóð fyrir, en síðan þá hafa félögin, hvert í sínum ranni, haldið undirbúningnum áfram.
Fjölmargir fundir hafa verið haldnir, kannanir gerðar og nú að undanförnu hafa félögin verið að móta sínar kröfugerðir fyrir komandi samninga. Alls hafa 16 félög innan Starfsgreinasambandsins skilað inn samningsumboði til sambandsins sem og kröfugerðum. Í næstu viku mun samninganefnd SGS koma saman á tveggja daga fundi og móta sameiginlega kröfugerð sem verður í framhaldinu lögð fyrir Samtök atvinnulífsins.  

Félögin sem veitt hafa Starfsgreinasambandinu samningsumboð fyrir komandi kjarasamninga eru:

  • AFL Starfsgreinafélag
  • Aldan stéttarfélag
  • Báran stéttarfélag
  • Drífandi stéttarfélag
  • Eining-Iðja
  • Framsýn stéttarfélag
  • Stéttarfélagið Samstaða
  • Stéttarfélag Vesturlands
  • Verkalýðsfélag Akraness
  • Verkalýðsfélag Grindavíkur
  • Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur
  • Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis
  • Verkalýðsfélag Snæfellinga
  • Verkalýðsfélag Suðurlands
  • Verkalýðsfélag Vestfirðinga
  • Verkalýðsfélag Þórshafnar

Innan Starfsgreinasambandsins eru 19 stéttarfélög. Félögin þrjú sem mynda svokallað Flóabandalag;  Efling, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur standa utan þeirra félaga sem þegar hafa falið Starfsgreinasambandinu samningsumboð.

Deila á