„Leggur þú þitt af mörkum?“

Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Ríkisskattstjóri  hafa í sumar tekið höndum saman á nýjan leik og ráðist í sérstakt átak til þess að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli.

Í átakinu er tekjuskráning fyrirtækja athuguð auk skil á viðeigandi sköttum og opinberum gjöldum. Þá er farið yfir skil á lögbundnum gjöldum til stéttafélaganna, ráðningasamningar skoðaðir og innt eftir vinnustaðaskírteinum. Starfsmenn við störf eru teknir tali og skráðir niður.

Að þessu sinni  heimsóttu fulltrúar aðilanna þriggja ferðaþjónustufyrirtæki á starfssvæði Framsýnar í byrjun júlímánaðar.  Víða þurfti að lagfæra ákveðna þætti varðandi tekjuskráningu, ráðningasamninga og vinnustaðaskírteini og þá voru dæmi um að endurskoða þurfi reksturinn all verulega hvað varðar skráningu og  skil á lögbundnum gjöldum til stéttafélaga og ríkis. Rekstraraðilar fengu ráðgjöf og hvatningu frá fulltrúunum og ábendingar um hvert frekar ætti að leita til að koma málunum í lag.

Rekstraraðilar sýndu góðan samstarfsvilja og tóku fulltrúunum í alla staði vel.

Deila á