Siðareglur staðfestar

Á aðalfundi Framsýnar voru staðfestar siðareglur fyrir félagið. Þær höfðu áður verið samþykktar í stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins og verið auk þess til kynnigar á heimasíðu stéttarfélaganna.  Hægt er að nálgast þær á heimasíðunni undir Framsýn, lög og reglugerðir. Á fundinum var skipuð Siðanefnd og hana skipa:

Nafn:                                      Vinnustaður:
Ari Páll Pálsson                          Atvinnuþróunarfélag Húsavíkur
Þóra Kristín Jónasdóttir          GPG-Fiskverkun
Fanney Óskarsdóttir                Leikskólinn Grænuvellir 

Varamenn:
Friðrik Steingrímsson              Stórutjarnarskóla
Friðrika Björk Illugadóttir       Framhaldsskólanum Laugum

Siðanefndin mun koma saman til fundar síðar í sumar og skipta með sér verkum og kynna sér jafnframt ný samþykktar  siðareglur sem þeim verður ætlað að framfylgja.

Deila á