Ályktað um framlög til löggæslumála

Það var góður fundur hjá stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar í gær og mikið ályktað. Hér kemur ályktun sem var samþykkt og varðar löggæslumál og framlög til löggæslumála í Þingeyjarsýslum:

Ályktun um löggæslumál 

„Framsýn, stéttarfélag skorar á innanríkisráðherra að bregðast við áhyggjum Þingeyinga er varðar löggæslumál á svæðinu. Það verður best gert með því að auka framlög til löggæslumála þegar í stað. 

Að mati Framsýnar er löggæsla í umdæminu undir öllum eðlilegum öryggiskröfum sem skapað hefur óöryggi meðal íbúa og fjölmargra ferðamanna sem leggja leið sína í Þingeyjarsýslur á hverju ári. 

Þá eru lögreglumenn undir miklu vinnuálagi í sínum daglegu og krefjandi störfum.

Framsýn er umhugað um velferð lögreglumanna og gerir því alvarlegar athugasemdir við þeirra starfsskilyrði. 

Lögreglumenn eiga til dæmis ekki að þurfa standa einir á vakt í stórum umdæmum sbr. umdæmi lögreglunar á Húsavík. Vinnuumhverfi lögreglumanna er vinnuveitandanum ekki til sóma, það er ríkinu. 

Framsýn krefst þess að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að tryggja eðlilega löggæslu í umdæmi lögreglunar á Húsavík með auknum framlögum til löggæslumála.“

Þingeyingar eiga góða lögreglumenn. Framsýn hefur áhyggjur af vinnuumhverfi þeirra og kallar eftir auknum framlögum til löggæslumála í umdæmi lögreglunnar á Húsavík.

Söguleg mynd. Það er ekki á hverjum degi sem maður nær mynd að tveimur lögreglumönnum á vakt í umdæmi lögreglunnar á Húsavík. Vegna niðurskurðar eru þeir oft einir á vakt.

Deila á