SGS og NPA miðstöðin gera kjarasamning

Starfsgreinasambandið sem Framsýn á aðild að og NPA miðstöðin hafa undirritað kjarasamning sem tekur gildi 1. febrúar næstkomandi. NPA miðstöðin hefur það að markmiði að veita fötluðu fólki á öllum aldri stuðning til að nýta notendastýrða persónulega aðstoð. Þannig hefur miðstöðin til dæmis aðstoðað við ráðgjöf við starfsmannamál, ráðningar, launa- og skipulagsmál og fleira. NPA verkefnið er tilraunaverkefni sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf sem veitir einstaklingunum stjórn, val og möguleika til fullrar þátttöku og til sjálfstæðs lífs með persónulegri aðstoð á öllum sviðum lífsins. 

Gerð kjarasamningsins er liður í því að búa til ramma utan um störf aðstoðarfólks fatlaðs fólks innan NPA verkefnisins. Samið var um kauptaxta, vaktavinnufyrirkomulag, greiðslur á ferðum  og fleira. Þá var ákveðið að halda áfram að ræða hvernig farið yrði með fyrirkomulag hugsanlegra sólarhringsvakta og sofandi vakta. Samningurinn nær til aðstoðarfólks fatlaðs fólks um allt land að undanskildu Flóasvæðinu, þ.e. þess starfsfólks sem er í Eflingu, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, en þessi félög undirrituðu kjarasamning fyrir nokkrum mánuðum síðan.

  Kjarasamninginn milli SGS og NPA má lesa hér.

Kristbjörg Sigurðardóttir varaformaður Framsýnar tók þátt í viðræðunum við forsvarsmenn NPA miðstöðvarinnar.

Deila á