Hörð gagnrýni á stjórnvöld

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar sem jafnframt er samninganefnd félagsins hóf fund í dag kl. 17:15 og var fundinum að ljúka rétt í þessu. Aðalefni fundarins voru kjaramál. Hörð gagnrýni kom fram á fundinum með framkomu stjórnvalda í garð verkafólks.  Óþolandi væri að ríkistjórn Íslands stæði ekki við gefin loforð um velferð, jöfnuð og réttlæti. Þess í stað væri vanda hrunsins varpað miskunnarlaust og grímulaust yfir á launafólk, sem birtist m.a. í skefjalausum skattahækkunum, gjaldskrárhækkunum og skerðingum á bótum almannatrygginga. Eftir mjög svo fjörugar og kraftmiklar umræður var meðfylgjandi ályktun samþykkt samhljóða en í næstu viku mun ráðast hvort kjarasamningunum verður sagt upp eða ekki. Ljóst er að stjórnvöld hafa ekki staðið við sínar yfirlýsingar sem fylgdu undirskrift síðustu kjarasamninga milli Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands. Kjarasamningar eru því í fullkomnu uppnámi að mati stjórnar- og trúnaðarmannaráðs Framsýnar.

Ályktun

„Framsýn- stéttarfélag skorar á ríkistjórn Íslands að standa við gefin loforð og undirritaðar yfirlýsingar er varða kjör og réttindi launafólks í landinu. Félagið telur ólíðandi með öllu að kjarasamningar skuli vera í uppnámi vegna vanefnda stjórnvalda.„

Deila á