Þungur undirtónn á formannafundi ASÍ

ASÍ boðaði til formannafundar í gær í Reykjavík til að ræða forsendur kjarasamninga en fyrri endurskoðun kjarasamninganna á að vera lokið 20. janúar. Ljóst er að efnahagslegar forsendur kjarasamninganna standast ágætlega en þegar kemur að loforðum ríkisstjórnarinnar sem sett voru fram í sérstakri yfirlýsingu 5. maí í tengslum við gerð kjarasamningana stendur varla steinn yfir steini. Hörð gagnrýni kom fram á stjórnvöld á fundinum, meðal annars frá formanni Framsýnar, Aðalsteini Á. Baldurssyni sem var á fundinum.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fór yfir stöðu mála nú sléttum átta mánuðum eftir undirritun kjarasamninganna. Í máli hans kom fram að meginforsenda samninganna hefur staðist, þ.e. kaupmáttur hefur aukist. Há verðbólga er hins vegar áhyggjuefni eins og lítil styrking krónunnar. Spár gera þó ráð fyrir að verðbólga lækki hratt með vorinu. Það kom hins vegar fram í máli Gylfa að sérstakt áhyggjuefni væri það sem snýr að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem var gerð í tengslum við kjarasamningana. Þar hallar verulega á stjórnvöld og vissulega tilefni til að segja upp kjarasamningum að mati forseta ASÍ. Ber þar hæst svik um að hækkun bóta almannatrygginga og atvinnuleysisbóta verði í takt við launahækkanir 1. febrúar nk. og skattlagningu á lífeyrissjóði á almennum markaði sem þýðir að óbreyttu skerðingu lífeyris félagsmanna ASÍ.

Það er ljóst að verkalýðshreyfingin verður að fara í viðræður við ríkisstjórnina á næstu tveimur vikum og fá skýr svör við ýmsum spurningum. Í ræðum allra þeirra sem tóku til máls á fundinum kom fram mikil gremja í garð ríkisstjórnarinnar enda hafa menn ekki gleymt svikum hennar í tengslum við Stöðugleikasáttmálann 2009. Að upplifa viðlíka vanefndir og þá, var fundarmönnum mikil vonbrigði. Glærur úr erindi Gylfa Arnbjörnssonar má sjá hér.

Eins og fram hefur komið tók formaður Framsýnar til máls á fundinum. Aðalsteinn þakkaði Gylfa fyrir góða yfirferð og sagðist styðja það að formenn færu heim í hérað eftir fundinn og funduðu með sínu fólki um framhaldið, það er hvort segja ætti samningunum upp en ljóst væri að forsendurnar væru brostnar. Hann sagði framkomu ríkistjórnarinnar í garð verkalýðshreyfingarinnar vera langt fyrir neðan allt velsæmi og loforð um stórfelda atvinnuuppbyggingu m.a  á Norðausturlandi hefðu ekki gengið eftir eins og lofað hefði verið. Stjórnvöld hefðu boðað stórfellda atvinnuuppbyggingu á Húsavík í tengslum við orkufrekan iðnað og sagt mönnum að bretta upp ermar. Þá mætti ekki gleyma því að Samtök atvinnulífsins gætu ekki endalaust varið eigi getuleysi með því að kenna stjórnvöldum um allt. Það vantaði atvinnustefnu hjá þeim sjálfum. Aðalsteinn fór einnig yfir stöðu verkafólks í landinu, öryrkja, aldraðra og fólks í atvinnuleit. Hann sagði stöðu þeirra slæma um þessar mundir og atvinnuleysið væri allt of hátt.Varðandi næstu skref sagði hann að Framsýn myndi boða til fundar í stjórn og trúnaðarmannaráði í næstu viku til að ákveða hvort félagið legði til að kjarasamningunum verði sagt upp eða ekki.

Það var þungt yfir formönnum aðildarfélaga ASÍ

Deila á