Jólafundur stjórnar verslunar- og skrifstofufólks

Stjórn deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar- stéttarfélags kom saman til jólafundar í dag.  Á fundinum var m.a. hafinn undirbúningur aðalfundar deildarinnar en stefnt er að því að hann verði haldinn í kringum 20. febrúar.  Stjórnin mun koma aftur saman snemma á nýju ári til að kára undirbúninginn, m.a. að leggja drög að skýrslu stjórnar og gera tillögu að nýrri stjórn deildarinnar.

Meðal annarra mála sem rædd voru á fundinum voru Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og farið yfir stefnumótun Landssambands íslenskra verslunarmanna sem deildin er aðili að. 

Stjórnarmenn voru almennt ánægðir með störf félagsins á árinu og lýstu flestir þeirra áhuga á því að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í stjórn deildarinnar á næsta aðalfundi.

Alltaf líf og fjör í Kaskó.

Deila á