Framsýnarmótið að hefjast

Framsýnarmótið í skák 2011 hefst í kvöld í fundarsal stéttarfélagsins Framsýnar að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Það er skákfélagið Goðinn í Þingeyjarsýslu og Framsýn-stéttarfélag, sem sjá um mótshaldið. Þeir sem vilja fylgjast með mótinu eru velkomnir.

Mótið er öllum áhugasömum opið.

Dagskrá.

1. umf. föstudaginn 28 október kl 20:00   25 mín (atskák)
2. umf. föstudaginn 28 október kl 21:00       
3. umf. föstudaginn 28 október kl 22:00     
4. umf. föstudaginn 28 október kl 23:00     

5. umf. laugardaginn 29 október kl 11:00  90 mín + 30 sek/leik
6. umf. laugardaginn 29 október kl 19:30   
7. umf. sunnudaginn 30 október kl 11:00

Verðlaunaafhending í mótslok.

Verðlaun.

Veittir verða glæsilegir eignarbikarar fyrir þrjá efstu í mótinu sem stéttarfélagið Framsýn gefur í tilefni af samvinnu Framsýnar og skákfélagsins Goðans í þingeyjarsýslu. Einnig hlýtur efsti utanfélagsmaðurinn eignarbikar.

Mótið verður reiknað til íslenskra skákstiga og til FIDE-skákstiga.
Ekkert þátttökugjald er í mótið.

Upplýsingar.

Allar nánari upplýsingar um Framsýnarskákmótið verða aðgengilegar á heimasíðu skákfélagins Goðans, ásamt skráningu, stöðu, skákir og svo loka-úrslit, verða birt á http://www.godinn.blog.is/  og á http://www.framsyn.is/

Skráning.

Skráning í mótið er hér í dálki til vinstri hér á heimasíðu Goðans á sérstöku skráningarformi. Einnig er hægt að skrái sig hjá Hermanni Aðalsteinssyni, formanni skákfélagins Goðans, í síma 4643187 begin_of_the_skype_highlighting              4643187      end_of_the_skype_highlighting og 8213187 begin_of_the_skype_highlighting              8213187      end_of_the_skype_highlighting og á lyngbrekku@simnet.is 

Listi yfir skráða keppendur á mótið.
https://docs.google.com/spreadsheet/ccc?key=0AgWZ02GI9Ay_dG1LYWx6TXRsM3dDaUw2MU0tQnRSQ1E&hl=en_US

Skráðir keppendur í morgun:

Hermann Aðalsteinsson        1390
Smári Sigurðsson                  1640
Árni Garðar Helgason             0
Sighvatur Karlsson                1354
Sigurður Daði Sigfússon         2332
Sigurbjörn Ásmundsson        1217
Hlynur Snær Viðarsson          1047
Snorri Hallgrímsson               1332
Ármann Olgeirsson                1405
Valur Heiðar Einarsson          1151
Stephen Jablon                     1965
Sigurður Arnarson                 2061
Jón Kristinn Þorgeirsson        1641
Logi Rúnar Jónsson               1343
Andri Freyr Björgvinsson       1469
Hersteinn Bjarki Heiðarsson  1230
Jakob Sævar Sigurðsson        1777
Einar Hjalti Jensson               2239

Deila á