LÍÚ með 100 þúsund félagsmenn ASÍ í gíslingu

Ljóst er að mikil reiði er meðal verkafólks í landinu með yfirgang og frekju LÍÚ í þeim kjaraviðræðum sem staðið hafa yfir undanfarið milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.  Svo virðist vera að LÍÚ hafi yfirtekið Samtök atvinnulífsins og haldi þar með verkafólki í landinu í gíslingu. Framsýn hefur ekki fram að þessu vísað kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins til Ríkissáttasemjara en miklar líkur eru á að það verði samþykkt um helgina en Samninganefnd félagsins mun fjalla um málið. Ljóst er að vinnubrögð Samtaka atvinnulífsins í þessum kjaraviðræðum munu fara á spjöld sögunnar enda þeim til skammar svo ekki sé meira sagt.

Þessar yfirlýsingar eru inn á heimasíðu ASÍ:

Hagsmunir LÍÚ yfirskyggja allt annað hjá SA

Í upphafi þeirra kjaraviðræðna sem staðið hafa undanfarna mánuði lögðu Samtök atvinnulífisins ríka áherslu á að gerður yrði kjarasamningur til þriggja ára. Rökin voru þau að slíkur samningur myndi skapa stöðugleika sem nauðsynlegur væri á vegferð þjóðarinnar út úr mestu kreppu síðari tíma á Íslandi. Þetta var kölluð atvinnuleiðin. Þrátt fyrir takmarkaðan áhuga ASÍ og aðildarsamtaka þess í fyrstu á langtíma samningi, vegna óvissu í efnahagsmálum, var ákveðið að hefja viðræður á þessum nótum og skoða hvað áynnist.

Fljótlega eftir að viðræður hófust kom í ljós að Samtök atvinnulífsins gerðu það að skilyrði fyrir gerð kjarasamninga, að niðurstaða fengist í sjávarútvegsmálum. SA vildi ekki einungis tryggja lausn í sjávarútvegsmálum, heldur náði krafan einnig til þess að lausnin væri SA og LÍÚ þóknanleg. Samninganefnd ASÍ var ekki reiðubúin að setjast að viðræðum á þessum forsendum og sleit viðræðum. Umræða um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafa ekkert með almennar kjaraviðræður á Íslandi að gera. ASÍ og aðildarsamtök þess hafa skoðanir á sjávarútvegsmálum en það hefur aldrei komið til greina hjá Alþýðusambandinu að styðja kröfur SA og LÍÚ varðandi breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Viðræður hófust aftur í febrúar eftir að miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun þar sem áréttað var að SA bæri samkvæmt landslögum að standa undir þeirri frumskyldu sinni að ganga til kjarasamninga. Sjávarútvegsmálin vofðu þó enn yfir.

LÍÚ var með kverkatak á kjaraviðræðunum. LÍÚ tók 100 þúsund félagsmenn ASÍ í gíslingu. LÍÚ sem er eitt af átta aðildarfélögum SA tók sín eigin samtök í gíslingu og þar með stóra aðila eins og Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar. Allt var þetta gert til að þvinga fram niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem væri útgerðaraðlinum í landinu þóknanleg. Þetta er ofbeldi og vinnubrögð sem eru LÍÚ til vansa. Þetta framferði varð að lokum til þess að sú vegferð um þriggja ára samning, sem SA hóf sjálft í byrjun árs, rann út í sandinn í dag.

Rökin sem SA lagði upp með, að þjóðarheill krefðist langtímasamnings, véku á endanum fyrir hagsmunum LÍÚ. Það er dapurleg niðurstaða. SA beit svo höfuðið af skömminni með því að ganga á bak orða sinna og svíkja undirritun skammtímasamnings sem lá á borðinu og fresta þannig launahækkun hjá okkar fólki.

SA svíkur gefin loforð um skammtímasamning

SA skilyrti gerð skammtímasamnings sem lá á borðinu í karphúsinu í kvöld því að verkalýðshreyfingin færi með SA í stríð við ríkisstjórnina. Það átti að gerast með sameiginlegri yfirlýsingu um að ríkisstjórnin bæri ábyrgð á því að þriggja ára samningur náðist ekki fyrr í dag. ASÍ og aðildarsamtök þess eru ekki tilbúin til þess enda ríkisstjórnin komið verulega til móts við kröfur verkalýðshreyfingarinnar á allra síðustu dögum.

Auk þess lætur ASÍ ekki stilla sér upp við vegg. Alþýðusambandið og aðildarsamtök þess eru fullfær um að velja sér sína andstæðinga sjálf. Þá hefur það aldrei staðið til af hálfu ASÍ að ganga til liðs við SA í sjávarútvegsmálunum. Þessi deila um gerð kjarasamninganna snýst ekki lengur um kjör launafólks heldur pólitík. Af þessum sökum yfirgáfu fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar karphúsið á tólfta tímanum í kvöld.

Deila á