Þrátt fyrir kreppu fjölgar þeim fyrirtækjum sem greiða til Framsýnar

Alls greiddu 2040 félagsmenn til Framsýnar- stéttarfélags á árinu 2010 en greiðandi félagar voru 1962 árið 2009. Samkvæmt samþykkt stofnfundar félagsins frá 1. maí 2008 er ekki lengur miðað við sérstakt lágmarksgjald svo menn teljist fullgildir félagsmenn heldur teljast þeir félagsmenn sem greiða til félagsins á hverjum tíma og ganga formlega í félagið. Um síðustu áramót voru gjaldfrjálsir félagsmenn samtals 210, það eru aldraðir og öryrkjar. Þá má geta þess að 327 launagreiðendur greiddu til félagsins á síðasta ári og fjölgaði þeim um 30 milli ára. 

Félagsmenn þann 1. janúar 2011 voru því samtals 2250 en voru árið áður 2169 og raðast þannig eftir starfsgreinum: 

  Fullgildir Gjaldfrjálsir Samtals Hlutfall
Almennt svið 234 37 271 13,28%
Matvælasvið 386 19 405 19,85%
Þjónustusvið 393 21 414 20,29%
Flutninga- og mannvirkjasvið 198 19 217 10,64%
Iðnaðarsvið 46 17 63 3,09%
Ríkis- og sveitarfélagasvið 468 51 519 25,44%
Sjómannadeild 88 12 100 4,90%
Verslunarmannadeild 227 34 261 12,79%
Samtals félagar 2040 210 2250  
       
             

Vinsamlegast takið töflunni með fyrirvara þar sem erfitt  er að greina félagsmenn fullkomlega eftir starfsgreinum og því gætu verið smá skekkjur í töflunni.                               

Skilgreining: (Almennt svið)
Almennir starfsmenn eru þeir sem starfa m.a. við ræstingar í fyrirtækjum og stofnunum og hjá fyrirtækjum eins og Jarðborunum, Fatahreinsun Húsavíkur, Meðferðarheimilinu Árbót, sumarbúðum, Landsvirkjun, olíufélögum, Ölgerðinni og Bílaþjónustunni.

Deila á