Veikindi og slys

Hér verður gerð grein fyrir réttindum félagsmanna vegna veikinda, atvinnusjúkdóma, slysa og veikinda barna. Þeir aðilar sem koma að því að byggja upp réttindi við þessar aðstæður eru laungreiðendur og greiða þeir rétt samkvæmt kjarasamningum, Sjúkrasjóður Þingiðnar og Tryggingastofnun ríkisins. Þegar um er að ræða varanlegt orkutap og tekjutap vegna veikinda og slysa koma til réttindi hjá Stapa lílfeyrissjóði og Sameinaða lífeyrissjóðnum.

Veikinda- og slysaréttur skv. kjarasamningi Þingiðnar (Samiðnarsamningur) á almennum vinnumarkaði:

Starfsaldur Veikindi og slys Atvinnusjúkdómar og vinnuslys Veikindi barnayngri en 13 ára
Á 1. mánuði   3 mán. á dagvinnulaunum  
Efir 1 mán. starf 2 dagar á fullum launum 2 dagar á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
7 dagar, dagvinna og vaktaálag
Efir 2 mán. starf 4 dagar á fullum launum 4 dagar á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
7 dagar, dagvinna og vaktaálag
Efir 3 mán. starf 6 dagar á fullum launum 6 dagar á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
7 dagar, dagvinna og vaktaálag
Efir 4 mán. starf 8 dagar á fullum launum 8 dagar á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
7 dagar, dagvinna og vaktaálag
Efir 5 mán. starf 10 dagar á fullum launum 10 dagar á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
7 dagar, dagvinna og vaktaálag
Efir 6 mán. starf 1 mán. á fullum launum 1 mán. á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
7 dagar, dagvinna og vaktaálag
Eftir 1 árs starf 1 mán. á fullum launum 1 mán. á fullum launum
3 mán. á dagvinnulaunum
10 dagar, dagvinna og vaktaálag
Eftir 2 ára starf 1 mán. á fullum launum
1 mán. á dagv.launum
1 mán. á fullum launum
4 mán. á dagv.launum
10 dagar, dagvinna og vaktaálag
Eftir 3 ára starf 1 mán. á fullum launum
2 mán. á dagv.launum
1 mán. á fullum launum
5 mán. á dagv.launum
10 dagar, dagvinna og vaktaálag
       

Starfsaldur miðast almennt við starf hjá sama fyrirtæki. Undantekning frá þessu eru starfsmenn í byggingagreinum, þar miðast starfsaldur við unnin tíma í starfsgreininni að loknu sveinsprófi. Veikindaréttur miðast við heildarrétt á hverju 12 mánaða tímabili. Ef launagreiðandi óskar eftir læknisvottorði greiðir hann kostnað vegna þess. Við vinnuslys greiðir launagreiðandi allan eðlilegan sjúkrakostnað s.s. lækniskostnað, lyf og akstur.

 

Vinnuslys og atvinnusjúkdómar

Þegar starfsmaður slasast í vinnu eða á beinni leið til eða frá vinnu er mikilvægt að tilkynna það til Vinnueftirlits ríkisins á sérstökum eyðublöðum. Þegar um er að ræða alvarlegri slys sem kunna að valda fjarveru um lengri tíma er mikilvægt að kalla Vinnueftirlitið og Lögreglu á vettvang til úttektar og skýrslutöku.

Víðtækari réttindi en kjarasamningur kveður á um
Við sérstakar aðstæður getur réttur félagsmanna vegna vinnuslysa / atvinnusjúkdóma verið lengri en kjarasamningar kveða á um, t.d. ef ástæður vinnuslyss / atvinnusjúkdóms eru á ábyrgð launagreiðandans eða fulltrúa hans s.s. vegna ónógs öryggisbúnaðar á vinnustað, rangrar notkunar á honum, hættulegrar vinnuaðstöðu eða annarra ástæðna af þessu tagi. Í málum sem þessum aðstoðar lögmaður stéttarfélaganna félagsmenn.

Réttindi hjá Sjúkrasjóði Þingiðnar

Sjóðsfélagar Sjúkrasjóðs Þingiðnar njóta fjölbreyttra réttinda hjá sjúkrasjóðnum í samræmi við reglugerð hans. Réttindi í sjóðnum miðast við greitt félagsgjald til sjóðsins hverju sinni og aðild umsækjanda að félagin.  Nánar er fjallað um réttindin í reglugerð sjúkrasjóðs félagsins sem er samþykkt er á aðalfundi félagsins hverju sinni. 

Helstu réttindi eru:

Sjúkradagpeningar til sjóðsfélaga vegna eigin veikinda eða slysa
Sjúkradagpeningar, sem nema 80% af launum sl. 6 mánaða fyrir veikindi eða slys greiðast í allt að 120 almanaksdaga, frá þeim tíma er samningsbundinni eða lögboðinni kaupgreiðslu lýkur. Réttur fellur niður þegar sjóðfélagi öðlast rétt til örorkugreiðslna/lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins eða lífeyrissjóði. Sama á við þegar sjóðfélagi fær launagreiðslur eða ígildi þeirra vegna veikinda eða slysa frá tryggingafélagi. Upphæð dagpeninga skal miðast við starfshlutfall og starfstíma hjá atvinnurekendum, sem greiða gjald til sjóðsins, á síðustu 12 mánuðum fyrir veikindi eða slys.

Sjúkradagpeningar til sjóðsfélaga vegna veikinda eða slysa barna/maka
Þegar launatekjur sjóðsfélaga falla niður sökum veikinda eða slysa barna/maka, greiðir sjóðurinn sjúkradagpeninga í allt að 90 almanaksdaga.

Endurhæfing hjá NFLÍ Hveragerði eða sambærilegri stofnun
Sjóðsfélagi sem dvelur á Heilsustofnun NLFI í Hveragerði eða á sambærilegri stofnun fær allt að 50% af dvalarkostnaði endurgreiddan frá sjóðnum, enda framvísi hann vottorði frá lækni um að meðferðin hafi verið nauðsynleg. Að hámarki 40.000 kr.

Sjúkraþjálfun
Sjóðurinn tekur þátt í 50% af kostnaði sjóðsfélaga vegna endurhæfingar/sjúkraþjálfunar eftir veikindi eða slys.

Sjúkranudd
Sjóðurinn greiðir kr. 1.500 af kostnaði sjóðsfélaga við hvern tíma í sjúkranuddi eftir veikindi eða slys.

Dánarbætur
Við andlát sjóðfélaga sem er yngri en 67 ára, var í starfi (á vinnumarkaði) og greitt hefur verið af til sjóðsins iðgjald í samfellt 5 ár fyrir andlát, eru greiddar dánarbætur til lögerfingja kr. 300.000.  Við andlát sjóðsfélaga, sem ekki er á vinnumarkaði en var sjóðfélagi við starfslok eru greiddar útfararstyrkur til lögerfingja kr. 80.000. Skilyrði styrkveitingar er að hinn látni hafi verið sjóðfélagi a.m.k. síðustu 5 ár fyrir starfslok.

Fæðingarstyrkur
Sjóðsfélagi fær styrk vegna barnsfæðinga eða ættleiðingar barns yngri en 10 ára að upphæð kr. 60.000.  Styrkurinn greiðist við lok fæðingarorlofs.

Glasafrjóvgun
Sjóðsfélagi sem fer í glasafrjóvgun fær styrk kr. 25.000,-. Séu báðir foreldrar sjóðfélagar skulu þeir eiga rétt á 50.000 kr. styrk. Sjóðnum skal heimilt að greiða fyrir eina aðgerð.

Krabbameinsskoðun og hjartaskoðun
Sjóðurinn tekur þátt í reglubundinni krabbameinsleit.

Heilsurækt sjóðsfélaga
Sjóðurinn veitir sjóðsfélaga styrk kr. 12.000 á ári, vegna forvarna, heilsueflingar og endurhæfingar. Umsækjendur skulu framvísa löglegum reikningi.

Sálfræðiaðstoð
Félagsmenn eiga rétt á kr. 3.000 niðurgreiðslu per skipti vegna meðferðar hjá sálfræðingi. Þó aldrei meira en 50% af kostnaði og að hámarki 12 skipti á ári. 

Tækjastyrkir
Sjóðurinn niðurgreiðir kaup félagsmanna á gleraugum og linsum allt að kr. 30.000 þó aldrei meira en 50% af kostnaði.  Einnig niðurgreiðir félagið Laser-aðgerðir á augum um allt að kr. 30.000 á hvort auga. Sjóðsfélagi getur einnig fengið styrk til kaupa á heyrnartækjum, allt að kr. 30.000 á hvort eyra. Allir tækjastyrkir miðast við 36 mánaða tímabil.

Málskot
Telji sjóðfélagi að umsókn hans hafi ekki hlotið afgreiðslu í samræmi við reglugerð sjóðsins er honum heimilt að vísa ágreiningi til félagsstjórnar. Úrskurðir félagsstjórnar eru bindandi fyrir stjórn sjúkrasjóðs og sjóðfélaga.

Sótt er um greiðslur á sérstökum eyðublöðum sem hægt er að fá hér eða hjá Skrifstofu stéttarfélaganna.

Önnur réttindi

Réttindi hjá lífeyrissjóðum
Sjóðsfélagar lífeyrissjóða sem verða fyrir tekjutapi vegna skertrar vinnugetu 50% eða umfram það vegna veikinda eða slysa, eiga rétt á örorkulífeyri og barnalífeyri. Maki sjóðsfélaga sem fellur frá á rétt á makalífeyri og barnalífeyri.

Réttindi hjá Tryggingastofnun ríkisins. [www.tr.is]
Starfmenn sem verða fyrir slysi eiga rétt á slysadagpeningum frá og með áttunda degi eftir slys enda standi veikindi lengur en 10 daga. Slysadagpeningar greiðast í allt að 52 vikur. Meðan launþegi nýtur launa vegna slyssins ganga slysadagpeningar og barnadagpeningar til launagreiðandans.
Í veikindum eiga starfsmenn sem verið hafa í fullu starfi rétt á sjúkradagpeningum og barnadagpeningum. Sjúkradagpeningar greiðast í allt að 52 vikur og greiðast frá lokum veikindaréttar hjá vinnuveitenda.
Sótt er um slysadagpeninga og sjúkradagpeninga hjá umboðsmanni Tryggingarstofnunar ríkisins á sýsluskrifstofunni á Húsavík sími 464-1300.

Allar nánari upplýsingar um réttindi félagsmanna í veikindum og slysum eru veittar á Skrifstofu stéttarfélaganna sími 464-6600.

Comments are closed.