30. nóvember 2009 - kl. 16:59
Desemberuppbót 2009
Almennt skal greiða desemberuppbót þann 1. desember ár hvert. Full desemberuppbót miðast við að félagsmaður hafi verið í fullu starfi allt árið til 30. nóvember. Þeir sem eru í hlutastarfi skulu fá greitt hlutfallslega. Þeir sem störfuðu hluta úr ári geta einnig átt rétt á desemberuppbót.
Desemberuppbót árið 2009 fyrir félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur er eftirfarandi:
Framsýn- stéttarfélag
Félagar á almenna markaðnum (ekki hjá ríki eða sveitarfélögum)
Desemberuppbót er kr. 45.600
Félagar í verslunum og á skrifstofum(ekki hjá ríki eða sveitarfélögum)
Desemberuppbót er kr. 51.800
Félagar sem starfa hjá sveitarfélögum
Desemberuppbót er kr. 72.399
(Þeir sem voru ráðnir fyrir 29. maí 2005 fá desemberuppbót sem nemur 50% af mánaðarlaunum).
Félagar sem starfa hjá ríkisstofnunum
Desemberuppbót er kr. 45.600
(Þeir sem voru við störf hjá HÞ fyrir 4. apríl 2004 fá desemberuppbót sem nemur 61.000 ).
Félagsmenn sem starfa hjá Meðferðarheimilinu Árbót
Desemberuppbótin er kr. 72.399
Félagsmenn sem starfa hjá Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík
Desemberuppbótin er kr. 72.399
(Þeir sem voru ráðnir fyrir 1. maí 2004 fá desemberuppbót sem nemur 50% af mánaðarlaunum).
Þingiðn
Desemberuppbót er kr. 45.600
Starfsmannafélag Húsavíkur
STH félagar sem starfa hjá sveitarfélögum
Desemberuppbót er kr. 72.399
(Þeir sem voru ráðnir fyrir 29. maí 2005 fá desemberuppbót sem nemur 50% af mánaðarlaunum).
STH félagar sem starfa hjá ríkisstofnunum
Desemberuppbót er kr. 45.600
(Þeir sem voru ráðnir fyrir 1. maí 1997 fá desemberuppbót sem nemur 50% af desemberlaunum).
Tilkynningar
24. ágúst 2010 - kl. 13:32
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.