Félagsmenn í Framsýn stéttarfélagi starfa eftir neðangreindum samningum. Hægt er að nálgast samningana hér fyrir neðan.
Kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins frá 22. júní 2011.
Eftir þessum kjarasamningi starfa flestir félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi s.s. fiskvinnslufólk, iðnverkafólk, hafnaverkamenn, verkamenn við sauðfjárslátrun, byggingaverkamenn, bensínafgreiðslufólk, bifreiða- og tækjastjórnendur og almennt verkafólk.
Samningur Framsýnar og SA 2011 (Viðbót við samninginn frá 2011)
Starfsgreinasamband Íslands við Samtök atvinnulífsins- vegna starfsmanna á veitinga-, gisti- og greiðasölustöðum og við hliðstæða starfsemi frá 2008.
Eftir þessum kjarasamningi starfa félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi sem vinna á veitinga-, gisti- og greiðasölustöðum. Gildir frá 1. febrúar 2008.
Samningur Framsýnar og SA 2011 (Viðbót við samninginn frá 2008)
Landssamband ísl. verzlunarmanna við SA 2011
Eftir þessum kjarasamningi starfa félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi sem vinna í verslunum og við skrifstofustörf.
Framsýn við samninganefnd sveitarfélaga frá 1. júní 2011
Eftir þessum kjarasamningi starfa félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi sem vinna hjá sveitarfélögum og sjálfseignastofnunum sem rekin eru af sveitarfélögum. Gildir frá 1. júní 2011.
Starfsgreinasamband Íslands við fjármálaráðherra f.h. Ríkissjóðs frá 1. maí 2011
Eftir þessum kjarasamningi starfa félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi sem vinna hjá ríkisstofnunum.
Framsýn er með stofnanasamninga við eftirfarandi ríkisstofnanir:
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
Framhaldsskólinn á Húsavík
Flugleiðahótel ehf. vegna starfsfólks á sumarhótelum frá júní 2011
Gildir fyrir starfsfólk á sumarhótelum Flugleiðahótela ehf.
Sjómannasamband Íslands við Landssamband Íslenskra Útvegsmanna frá 2004.
Eftir þessum kjarasamningi starfa sjómenn í Framsýn- stéttarfélagi.
Framsýn við Landssambands smábátaeigenda um ákvæðisvinnu við línu og net frá 1. júlí 2011
Eftir þessum samninga starfa þeir sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi annarra en þeirra sem eru hlutaráðnir, enda gilda þar ákvæði sjómannasamninga. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.
Framsýn og VÞ við Bændasamtök Ísland frá september 2011
Eftir þessum kjarasamningi starfa félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi sem vinna við bústörf á bændabýlum.
Starfsgreinasambands Íslands við Landsvirkjun frá júní 2011
Eftir þessum kjarasamningi starfa félagsmenn í Framsýn- stéttarfélagi sem vinna hjá Landsvirkjun.
Framsýn- stéttarfélag hefur að auki gert sérkjarasamninga við eftirfarandi fyrirtæki og stofnanir:
