Category Archives: Fréttir

Fundað í dag um orlofsmál á Illugastöðum

Aðalfundur Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum sem er í eigu stéttarfélaga víða um land fór fram í dag á Illugastöðum í fallegu veðri enda alltaf gott veður í dalnum góða að sögn heimamanna. Fram kom að reksturinn á síðasta reikningsári gekk vel. … Continue reading

Aðalfundur STH

Aðalfundur Starfsmannafélags Húsavíkur verður haldinn þriðjudaginn 22. maí 2012. Fundurinn verður á veitingastaðnum Sölku og hefst kl. 20:00. Veitingar verði í boði í lok fundarins. Dagskrá fundarsins verður með hefðbundnum hætti. Það er venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Skorað er … Continue reading

Orri Freyr í stjórn Stapa, lífeyrissjóðs

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum 8. maí. Mæting á fundinn var góð og umræður líflegar. Á dagskrá voru hefðbundin ársfundarstörf. Fjárfestingartekjur ársins námu ríflega 6 milljörðum króna. Ávöxtun Tryggingardeildar sjóðsins á árinu nam 5,2%. Ávöxtun á … Continue reading

Góðu þingi lokið – Aðalsteinn í framkvæmdastjórn

Vel heppnuðu framhaldsþingi Starfsgreinasambandsins lauk í gær. Á þinginu voru samþykkt ný lög sambandsins þar sem umtalsverðar breytingar eru gerðar á stjórnskipulagi, hlutverki og starfsemi sambandsins. Að auki voru samþykktar fjórar nýjar reglugerðir sem er ætlað að styrkja starfsemina, efla … Continue reading

Aðalfundarboð VÞ

Aðalfundur Verkalýðsfélags Þórshafnar fyrir árið 2011 verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni fimmtudagskvöldið 24. maí n.k.og hefst  kl.20.00. Dagskráin er eftirfarandi.

Skemmtilegir nemendur

Það er mikil metnaður í skólastarfinu í  Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit og mikið lagt upp úr því að undirbúa nemendur vel út í lífið. Starfsmönnum  Skrifstofu stéttarfélaganna var boðið að koma í morgun með kynningu á starfsemi stéttarfélaga og helstu réttindum … Continue reading

Viltu horfa á hátíðarhöldin 1. maí?

Hinn magnaði fréttavefur 640.is gerir hátíðarhöldum stéttarfélaganna góð skil í eftirfarandi frétt http://www.640.is/is/frettir/myndband-1.-mai-i-hollinni. Með því að fara inn á þessa slóð er hægt að horfa á nokkur atriði úr dagskrá hátíðarhaldanna sem fóru vel fram og voru öllum til mikils … Continue reading

Nubo, EU og verkalýðsmál til umræðu

Formaður Framsýnar fékk óvænta heimsókn í gær þegar tveir blaðamenn frá Jyllands-Posten í Danmörku komu við á skrifstofu félagsins til að taka við hann viðtal í blaðið. Aðalsteinn segist hafa fengið fjöldann allan af spurningum  m.a. um verkalýðsmál, atvinnuleysi á … Continue reading

Aðalfundur Þingiðnar

Aðalfundur Þingiðnar verður haldinn þriðjudaginn 29. maí í fundarsal félagsins. Fundurinn hefst kl. 18:00. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Fólkið á bak við tjöldin

Það er mikið verk að skipuleggja hátíðarhöld stéttarfélaganna 1. maí á hverju ári. Sérstök nefnd sem skipuð er fulltrúum aðildarfélaga Skrifstofu stéttarfélaganna kemur að því að ganga frá dagskránni. Síðan sér stjórn og trúnaðarráð stéttarfélaganna um að  gera salinn í … Continue reading