Mánudaginn 7. apríl s.l. var haldinn á Húsavík, aðal- og kynningarfundur fyrir Virk – starfsendurhæfingarsjóð í Þingeyjarsýslu. Read more „Ársfundur Virk 2014 í Þingeyjarsýslum“
Landsmót UMFÍ 50+ haldið á Húsavík
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af skemmtun og keppni. Fjölmargar keppnisgreinar eru í boði sem og önnur afþreying um mótshelgina og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, ýmist til að keppa, fylgjast með eða forvitnast! Read more „Landsmót UMFÍ 50+ haldið á Húsavík“
Vertíðin að hefjast
Það eru mörg verkin sem þarf að vinna áður en hvalaskoðunarvertíðin hefst að fullu í sumar. Tíminn hefur meðal annars verið notaður til að mála og laga hvalaskoðunarbátana. Hvalaskoðunarfyrirtækin eru bjartsýn á sumarið. Read more „Vertíðin að hefjast“
Færeyjaferð
Vegna forfalla eru örfá sæti laus í Færeyjaferð stéttarfélaganna í haust. Frekari upplýsingar er hægt að fá á Skrifstofu stéttarfélaganna. Verðið er aðeins kr. 95.000,-. Read more „Færeyjaferð“
Framsýn krefst fundar með Vísi
Framsýn hefur þegar átt einn fund með forsvarsmönnum Vísis en fundurinn var haldinn af frumkvæði Vísis klukkutíma áður en starfsmönnum var tilkynnt um áform fyrirtækisins að hætta starfsemi á Húsavík 1. maí n.k. Formaður Framsýnar hefur síðustu daga verið í sambandi við forsvarsmenn fyrirtækisins og krafist fundar þar sem farið verði yfir stöðuna og ábyrgð fyrirtækisins gagnvart samfélaginu og starfsmönnum sem búa við mikla óvissu um þessar mundir. Read more „Framsýn krefst fundar með Vísi“
Jákvæðni á íbúafundi á Raufarhöfn
Íbúasamtök Raufarhafnar stóðu fyrir íbúafundi á Raufarhöfn á þriðjudaginn sem tengist tilraunaverkefni sem staðið hefur yfir á Raufarhöfn. Árið 2012 hófst tilraunaverkefni á Raufarhöfn að frumkvæði Byggðastofnunar. Verkefnið sem hlaut heitið „Brothættar byggðir“ nær nú að auki til Bíldudals, Breiðdalshrepps og Skaftárhrepps. Read more „Jákvæðni á íbúafundi á Raufarhöfn“
Spjallað við vegagerðarmenn
Í morgun var komið að því að heimsækja starfsmenn Vegagerðarinnar á Húsavík. Formanni Framsýnar var boðið upp á brauð af bestu gerð og ilmandi kaffi. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna fyrir starfsmönnum nýgerðan kjarasamning ríkisins og Starfsgreinasambands Íslands sem Framsýn á aðild að. Read more „Spjallað við vegagerðarmenn“
Íbúafundur í kvöld á Þingeyri- reiði út í Vísi
Um 100 manns, eða um þriðjungur bæjarbúa á Þingeyri eru nú staddir á íbúafundi í félagsheimilinu þar í bæ. Þar eru rædd viðbrögð við áformum Vísis hf. um að loka fiskvinnslunni í bænum og flytja hana til Grindavíkur, rétt eins og vinnslustöðvar sínar á Djúpavogi og Húsavík. Read more „Íbúafundur í kvöld á Þingeyri- reiði út í Vísi“
Farið yfir nýgerða kjarasamninga
Formaður Framsýnar gerði sér ferð til starfsmanna Skógræktarinnar í Vöglum í Fnjóskadal. Tilefnið var að fara yfir nýgerðan kjarasamning ríkisins og Starfsgreinasambands Íslands sem Framsýn á aðild að. Read more „Farið yfir nýgerða kjarasamninga“
Samningafundur um kjarasamning starfsmanna sveitarfélaga
Fulltrúar Framsýnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar munu í fyrramálið funda með samninganefnd sveitarfélaga um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn sveitarfélaga innan félaganna. Fundurinn verður í Reykjavík. Núverandi kjarasamningur rennur út um næstu mánaðamót. Read more „Samningafundur um kjarasamning starfsmanna sveitarfélaga“
Atvinnu- og kjaramál til umræðu á stjórnafundi
Uppskipun á hótelherbergjum!
Í gær var hótelherbergjaeiningum í nýtt hótel í Mývatnssveit skipað upp í Húsavíkurhöfn. Hótelið sem er í landi Arnarvatns hefur fengið nafnið Hótel Laxá og er um 3000m² bygging. Loftorka og verktakinn Reynir Ingvason, kenndur við Brekku í Aðaldal, hafa unnið að því að reisa þjónusturýmið. Herbergin 80 koma hins vegar í einingum frá Noregi og koma í tvennu lagi. Read more „Uppskipun á hótelherbergjum!“
Heimsmálin til umræðu
Daglega koma góðir gestir í heimsókn til að ræða málin. Hér eru þeir Aðalsteinn Júlíusson lögregluþjón og Örn Arngrímsson sjómaður að fá sér kaffi í góðu yfirlæti á Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík. Read more „Heimsmálin til umræðu“
Velkomin á kynningarfund NF
Rétt er að vekja athygli fólks á kynningarfundi sem haldinn verður á fimmtudaginn kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna um samnorrænu kvennaráðstefnuna Nordiskt Forum sem haldin verður í Malmö í Svíþjóð 12-15. júní 2014. Allir velkomnir. Read more „Velkomin á kynningarfund NF“
Atvinnurekendur-fræðslusjóðsgjald
Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að skv. nýgerðum kjarasamningi SGS og Samtaka atvinnulífsins sem Framsýn á aðild að hækkaði iðgjald í fræðslusjóðinn Landsmennt um 0,10% frá og með 1. janúar 2014. Vegna þessa verður iðgjaldið til Landsmenntar 0,30% frá þeim tíma sem skila ber til viðkomandi stéttarfélags. Atvinnurekendur eru beðnir um að hafa þetta í huga við útreikning launa.
Framsýn
Sala á miðum í Hvalfjarðargöngin
Miðar í hvalfjarðargöngin eru seldir á Skrifstofu stéttarfélaganna og hjá eftirtöldum aðilum á félagssvæði stéttarfélaganna. Í Mývatnssveit er Agnes Einarsdóttir með miðana til sölu, á Raufarhöfn Svava Árnadóttir og í Þingeyjarsveit Ósk Helgadóttir. Þá er Verkalýðsfélag Þórshafnar einnig með miðana til sölu á Þórshöfn. Miðarnir eru bara til sölu fyrir félagsmenn.
Helstu atriði úr kjarasamningi við ríkið
Á næstu dögum munu félagsmenn Framsýnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar sem starfa hjá ríkinu fá kynningarefni og kjörgögn vegna kjarasamnings Starfsgreinasambands Íslands og Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisjóðs sem var undirritaður 1. apríl sl. Í kynningarefninu má finna m.a. upplýsingar um fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar, helstu atriði samkomulagsins og nýjar launatöflur. Read more „Helstu atriði úr kjarasamningi við ríkið“
Ánægjuleg stund í Reykjadalnum
Þingiðn stóð fyrir skemmtilegu kvöldi á föstudaginn, en þá var félagsmönnum og mökum þeirra boðið í kvöldverð á Gamla-bauk og í leikhúsferð í Breiðumýri. Um 60 manns þáðu boðið sem fór afar vel fram. Read more „Ánægjuleg stund í Reykjadalnum“
Kynningarfundur um Færeyjaferð stéttarfélaganna
Félagsmenn stéttarfélaganna og makar sem hafa skráð sig í haustferð stéttarfélaganna til Færeyja 3. til 9. september eru boðaðir til fundar miðvikudaginn 9. apríl kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Á fundinum verður farið yfir ferðaáætlun og gerð grein fyrir staðfestingagjaldi og sýndar myndir úr fyrri ferðum. Read more „Kynningarfundur um Færeyjaferð stéttarfélaganna“
Fyrirmyndardagur hjá Vinnumálastofnun
Fyrirmyndardagurinn er dagur þar sem fyrirtæki bjóða atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að fylgja starfsmanni eftir í sínu fyrirtæki eða stofnun í einn dag eða hluta úr degi. Fyrirmyndardagurinn er haldinn í fyrsta sinn á Íslandi í dag, 4.apríl. Hugmyndin er að um árlegan viðburð verði að ræða. Read more „Fyrirmyndardagur hjá Vinnumálastofnun“