Breytingar á lögum um vsk og vörugjöld taka gildi um áramót
Um áramót taka gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem hafa áhrif á verðlag á allflestum vöru- og þjónustuliðum. Breytingar á virðisaukaskatti ættu að hafa áhrif á verðlag strax í upphafi nýs árs en ætla má að breytingar á vörugjöldum kunni skila sér á næstu vikum. Read more „Breytingar á lögum um vsk og vörugjöld taka gildi um áramót“
Bæklingur með upplýsingum um réttindi félagsmanna
Búið er að uppfæra bækling með helstu upplýsingum um réttindi sem félagsmenn eiga rétt á hjá Framsýn. Félagsmenn geta nálgast bæklinginn á Skrifstofu stéttarfélaganna auk þess sem honum verður dreift á vinnustaði þegar starfsmenn stéttarfélaganna fara í vinnustaðaheimsóknir á nýju ári. Read more „Bæklingur með upplýsingum um réttindi félagsmanna“
Áramótin gengu vel fyrir sig
Ekki er annað vitað en að áramótin hafi farið vel fram á félagssvæði stéttarfélaganna og menn fagni almennt nýju ári með bros á vör. Á Húsavík var kveikt í brennu á gamlársdag auk þess var mikið skotið upp af flugeldum á miðnætti. Read more „Áramótin gengu vel fyrir sig“
Um 30 milljónir í styrki til félagsmanna
Góður fundur sjómanna – ályktað
Hefð er fyrir því innan Framsýnar að halda aðalfund Sjómannadeildar Framsýnar rétt fyrir áramót. Fundurinn fór fram mánudaginn 29. desember og var góð mæting á fundinn sem fór vel fram. Read more „Góður fundur sjómanna – ályktað“
Um 1,5 milljónir til félagsmanna í auka starfsmenntastyrki
Stjórn Fræðslusjóðs Framsýnar kom saman í gær og tók fyrir styrkbeiðnir frá félagsmönnum er tengjast námi eða námskeiðum sem þeir hafa tekið þátt í á árinu 2014. Read more „Um 1,5 milljónir til félagsmanna í auka starfsmenntastyrki“
Gamlárshlaup á Húsavík
Heilsubætandi og hressandi venjur verða að halda áfram. Gamlárshlaup Skokka verður, að venju, haldið á Húsavík 31. desember og hefst kl. 13:00 við Sundlaug Húsavíkur. Read more „Gamlárshlaup á Húsavík“
Aðalfundur sjómanna í dag
Jólakveðja frá starfsmönnum stéttarfélaganna
Starfsmenn stéttarfélaganna fóru í hljóðver og tóku upp jólalag. Ekki er ólíklegt að flutningurinn á laginu verði til þess að lagið nái inn á allar helstu sjónvarps- og útvarpsstöðvar heimsins. Annars, Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Takk kærlega fyrir okkur
Í morgun færðu stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum í samstarfi við útibú Íslandsbanka á Húsavík Gjafa- og minningarsjóði Hvamms heimili aldraðra fallega gjöf til kaupa á spari matar- og kaffistelli fyrir 60 manns og geymsluskáp undir stellið. Read more „Takk kærlega fyrir okkur“
Dregið í jólagetraun stéttarfélaganna
Búið er að draga í jólagetraun stéttarfélaganna. Maðurinn reyndist vera Ingólfur Ingólfsson úr Grundargili í Reykjadal: Read more „Dregið í jólagetraun stéttarfélaganna“
Gleðistund- borðuðu saman hangikjöt
Starfsmenn stéttarfélaganna og fjölskyldur þeirra komu saman í hádeginu í dag á skrifstofu félaganna og borðuðu saman hangikjöt frá Fjallalambi og stórbúinu Grobbholti á Húsavík. Kjötið klikkaði ekki enda frá tveimur frábærum framleiðendum. Sjá myndir: Read more „Gleðistund- borðuðu saman hangikjöt“
Tæplega 100 einstaklingar skráðir atvinnulausir í Þingeyjarsýslum
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi á Íslandi í nóvember 3,3% en að meðaltali voru 5.430 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði um 213 milli mánaða. Read more „Tæplega 100 einstaklingar skráðir atvinnulausir í Þingeyjarsýslum“
Taka á móti gestum með jólabrosi
Þessar ungu og hressu stúlkur starfa á veitingastaðnum Sölku á Húsavík. Ljósmyndari heimasíðunnar kom aðeins við á Sölku og þar var allt fullt af gestum og því mikið að gera hjá starfsmönnum. Hér eru þær Eygló Dögg Hjaltadóttir og Elfa Björk Víðisdóttir sem tóku brosandi á móti gestum á aðventunni. Read more „Taka á móti gestum með jólabrosi“
Jóla og nýárskveðja frá fyrirtækjum og félagasamtökum
Hér má sjá myndband með kveðju frá fyrirtækjum og félagasamtökum á Húsavík sem bræðurnir Rafnar Orri og Harry Bjarki Gunnarssynir tóku saman.
Ilmandi skötulykt
GPG-Fiskverkun á Húsavík bauð starfsmönnum, völdum gestum og viðskiptavinum í skötuveislu í hádeginu í dag. Skatan og meðlætið bragðaðist afar vel og voru helstu matgæðingar á því að verkunin í ár væri með besta móti. Read more „Ilmandi skötulykt“
Gjöf til bókasafnsins á Þórshöfn
Sparisjóður Norðurlands og Verkalýðsfélag Þórshafnar tóku höndum saman og studdu myndarlega við lestrarhesta í byggðinni. Read more „Gjöf til bókasafnsins á Þórshöfn“
Stjórn í jólaskapi
Stjórn Þingiðnar kom saman til fundar í gær. Tekin voru fyrir nokkur mál s.s. málefni Lsj. Stapa, tvö erindi frá ASÍ, ákvörðun Vinnumálastofnunar um að loka þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík og þá var samþykkt að styrkja velferðarverkefni á félagssvæðinu. Þar með lauk góðu ári í starfi félagsins. Read more „Stjórn í jólaskapi“
Vísir hf. tapaði máli í Félagsdómi
Félagsdómur hefur kveðið upp dóm í máli Alþýðusambandsins, f.h. SGS vegna Framsýnar stéttarfélags gegn Samtökum atvinnulífsins vegna Vísis hf. Read more „Vísir hf. tapaði máli í Félagsdómi“