„Það er mikill áfangi og ánægjuefni að endurskoðun starfsmatsins sé lokið enda hefur þessi vinna staðið yfir í langan tíma. Mestu skiptir að hún skilar yfirgnæfandi meirihluta okkar félagsmanna hækkun launa en hún er að jafnaði um 3,3%,“ segir Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar – stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, um endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaganna sem nú liggur fyrir. Read more „STH- Nýtt starfsmat skilar 3,3% meðalhækkun launa“
Viðræðum SGS við ríkið og sveitarfélög frestað
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta viðræðum við bæði ríki og sveitarfélög fram í ágúst en stefnt er að því að undirrita samninga við þessa tvo aðila fyrir 1. október næstkomandi. Næstu samningafundir verða haldnir um miðjan ágúst. Read more „Viðræðum SGS við ríkið og sveitarfélög frestað“
Þingiðn – Góð kosningaþátttaka gefur skýra niðurstöðu um vilja félagsmanna
Nú stendur yfir kosning um þá kjarasamninga Þingiðnar sem gerðir hafa verið við Samtök atvinnulífsins, Félag pípulagningameistara, Bílgreinasambandið, Samband garðyrkjubænda og meistarafélög í byggingariðnaði innan Samtaka iðnaðarins. Kosningunni lýkur 15. júlí og ætti niðurstaðan að liggja fyrir um miðjan dag. Read more „Þingiðn – Góð kosningaþátttaka gefur skýra niðurstöðu um vilja félagsmanna“
Stéttarfélögin opna skrifstofu á Þeistareykjum
Fulltrúar Framsýnar og Þingiðnar funduðu í dag með fulltrúum Landsvirkjunar og LNS Saga á Þeistareykjum. Meðal annars var farið yfir samskiptamál og önnur atriði sem aðilar ætla að vinna sameiginlega að til að gera starfsumhverfið sem best fyrir starfsmenn á Þeistareykjum. Algjör samstaða er um það meðal stéttarfélaganna, Landsvirkjunar og LNS Saga að tryggja að þetta markmið náist. Read more „Stéttarfélögin opna skrifstofu á Þeistareykjum“
Samið við Bændasamtökin
Fundað með LNS Saga á Þeistareykjum
Formenn Framsýnar og Þingiðnar funduðu í gær með fulltrúum frá verktakanum LNS Saga sem sér um uppbygginguna á Þeistareykjum. Formennirnir fengu kynningu á framkvæmdunum auk þess sem farið var yfir starfsmannamál og réttindi starfsmanna. Formennirnir notuðu auk þess tækifærið og funduðu með hluta starfsmanna. Read more „Fundað með LNS Saga á Þeistareykjum“
Góður fundur um atvinnumál á vegum PCC
Þýska fyrirtækið PCC sem ætlar að reisa kísilmálmverksmiðju á Bakka við Húsavík og sveitarfélagið Norðurþing stóðu fyrir opnum íbúafundi á Húsavík í gær. Fundurinn fór fram í fundarsal stéttarfélaganna. Á fundinum var farið sérstaklega yfir uppbyggingu kísilvers PCC BakkiSilikon hf. á Bakka og uppbyggingu hafnar og vegtengingar vegna Bakka. Read more „Góður fundur um atvinnumál á vegum PCC“
Félagsmenn Verkalýðsfélags Þórshafnar ath.
Skrifstofa félagsins á Þórshöfn verður lokuð vegna sumarleyfis starfsmanns dagana 30.júní 1.júlí og 2.júlí n.k. Starfsmaður, Kristín Kristjánsdóttir, verður með símann 894-7360 og bústaðabókina ef á liggur. Eyþór Atli í síma 897-0260 mun afhenda félagsmönnum flugfarseðla,sé þess þörf. Verkalýðsfélag Þórshafnar
Kjarasamningur samþykktur á Þórshöfn
Félagar í Verkalýðsfélagi Þórshafnar samþykktu í atkvæðagreiðslu kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins annars vegar og kjarasamning Landssambands íslenskra verslunarmanna og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Read more „Kjarasamningur samþykktur á Þórshöfn“
Þingiðn samdi í gær
Í gær undirritaði Samiðn f.h. aðildarfélaga þar á meðal Þingiðnar undir nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins sem gildir til loka árs 2018. Read more „Þingiðn samdi í gær“
Félagar í Framsýn samþykktu kjarasamninginn
Í dag lauk atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins annars vegar og kjarasamning Landssambands íslenskra verslunarmanna og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Framsýn á aðild að báðum þessum samningum. Read more „Félagar í Framsýn samþykktu kjarasamninginn“
Til hamingju með daginn!
Í dag föstudaginn 19. júní 2015 minnumst við þess að að 100 ár eru liðin frá því að íslenskar konur 40 ára og eldri öðluðust kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Þann dag var stigið stórt skref í jafnréttismálum hér á landi og lögin miðuðust ekki eingöngu við konur. Þau giltu einnig um alþýðu fólks á Íslandi, vinnumenn og eignalausir karlmenn öðluðust með þeim hinn sama rétt. Read more „Til hamingju með daginn!“
Undirbúningur hafinn hjá stéttarfélögunum
Ljóst er að framundan eru miklir uppgangstímar á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Framkvæmdir eru byrjaðar á Þeistareykjum við uppbyggingu á orkumannvirkum. Á æstu vikum hefjast síðan framkvæmdir á vegum PCC á Bakka við byggingu á kísilveri. Read more „Undirbúningur hafinn hjá stéttarfélögunum“
Konum eru allir vegir færir
Það voru hress og kát mæðgin sem einn af fréttariturum heimasíðunnar rakst á í Fnjóskadalnum í dag. Þetta voru þau Jenný Friðjónsdóttir og sonur hennar Sigurjón Gunnar Gunnarsson. Jenný starfar við það sem hingað til hefur verið skilgreint sem hefðbundið karlastarf. Read more „Konum eru allir vegir færir“
Kynningarfundir á Raufarhöfn og Þórshöfn
Framsýn og Verkalýðsfélag Þórshafnar leggja mikið upp úr því að félagsmenn séu vel meðvitaðir um helstu atriði þeirra kjarasamninga sem hafa verið undirritaðir undanfarið og varða félagsmenn þessara félaga. Með þessari frétt fylgja myndir frá tveimur fundum sem haldnir voru á Þórshöfn og Raufarhöfn. Fundirnir voru ágætlega sóttir. Read more „Kynningarfundir á Raufarhöfn og Þórshöfn“
Greiðum atkvæði félagar
Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Landssambands íslenskra verslunarmanna og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Framsýn á aðild að þessum samningum. Félagsmenn sem falla undir þessa kjarasamninga eru hvattir til að greiða atkvæði um samninganna. Read more „Greiðum atkvæði félagar“
Sameiginlegur stjórnarfundur
Stjórnir Þingiðnar og Framsýnar munu funda saman næsta mánudag kl. 17:15 í fundarsal stéttarfélaganna á Húsavík. Tilefni fundarins er að fara yfir væntanlegar framkvæmdir á stór Húsavíkursvæðinu, það er uppbyggingu á Húsavík og á Þeistareykjum. Auk þess verða nokkur önnur mál tekin fyrir er varða starfsemi stéttarfélaganna. Read more „Sameiginlegur stjórnarfundur“
Fæ ég koss í kaupbæti?
Kynferðisleg áreitni er því miður daglegt brauð fyrir starfsfólk í hótel- og veitingagreinum á Norðurlöndunum. Alltof margir upplifa áreitni frá káfandi gestum, kynferðislegan undirtón í samskiptum og almenna karlrembu. Þetta kemur fram í mörgum könnunum sem norræn stéttarfélög innan ferðaþjónustugreina hafa gert meðal félagsmanna sinna. Read more „Fæ ég koss í kaupbæti?“
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning verslunar- og skrifstofufólks að hefjast
Rafræn atkvæðagreiðsla aðildarfélaga Landssambands ísl. verzlunarmanna um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda hefst 10. júní 2015 kl. 9:00 og lýkur 22. júní kl. 12:00 á hádegi. Read more „Atkvæðagreiðsla um kjarasamning verslunar- og skrifstofufólks að hefjast“
Verkfalli félaga í Þingiðn frestað til 22. júní
Síðustu daga hafa staðið yfir viðræður milli Samiðnar, MATVÍS, RSÍ, VM, Grafíu /FBM og Félags hársnyrtisveina við SA um endurnýjun kjarasamninga. Read more „Verkfalli félaga í Þingiðn frestað til 22. júní“