Sjómenn, munið aðalfundin í dag

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar fer fram í dag kl. 17:00. Skorað er á starfandi sjómenn að fjölmenna á fundinn. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður umræða um kjaramál og þá verður boðið upp á hefðbundnar veitingar í lok fundarins. Stjórnin.

Farþegum hvalaskoðunarferða fjölgar verulega milli ára

Á árinu 2023 fóru 131.000 manns í hvalaskoðunarferðir frá Húsavík sem er tæplega 24% aukning frá fyrra ári. Árið 2023 er þar með stærsta árið í hvalaskoðun til þessa en um 110.000 farþegar fóru í hvalaskoðunarferðir frá Húsavík á árunum 2016- 2018. Fjögur fyrirtæki hafa boðið uppá í hvalaskoðunarferðir á þessu ári. Þessa frétt er að finna inn á síðu Norðurþings.

Stærstu stéttarfélög og landssambönd á almennum vinnumarkaði taka höndum saman um nýja þjóðarsátt

Íslensk heimili hafa of lengi verið föst í spennitreyju ofurvaxta og óðaverðbólgu, en hætta er á að kjarabætur sem náðst hafa fram í kjarasamningum síðustu ára brenni upp og verði að engu. Það hvernig tekst til við endurnýjun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði eftir áramótin mun skera úr um þetta.

Fulltrúar stærstu landssambanda og stéttarfélaga landsins skynja ákall samfélagsins um farsæla kjarasamningagerð og átta sig á fordæmisgefandi hlutverki kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði.

Formenn Eflingar, Landsambands íslenzkra verzlunarmanna, Samiðnar – sambands iðnfélaga, Starfsgreinasambands Íslands og VR eru sammála um grundvallarnálgun í komandi kjarasamningagerð, en samanlagt fara þessi félög með samningsumboð fyrir rúmlega 115 þúsund manns eða um 93% launafólks innan vébanda ASÍ.

Í sameiginlegri grundvallarnálgun þessara félaga er horft til þess að hófsamar launahækkanir á formi krónutöluhækkana verði bundnar ströngum forsendum um lækkun verðbólgu og vaxta, með það að markmiði að verja og auka kaupmátt launa meirihluta alls launafólks. Nálgunin felur í sér að allir aðilar sem hafa áhrif á afkomu heimilanna axli ábyrgð – fyrirtæki, stjórnvöld og sveitarfélög.

Stjórnvöld verða að leiðrétta stórfellda rýrnun barnabóta, vaxtabóta og húsnæðisbóta síðustu áratugi, en þessar skattfrjálsu bætur eru líflína margra heimila í landinu. Einnig verður að gera löngu tímabærar ráðstafanir til að tryggja öryggi leigjenda og koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn í heild sinni.

Félögin munu skipa sameiginlega samninganefnd, sem verður falið að leiða viðræður við stjórnvöld og SA um heildstæðan langtímasamning byggðan á þessari grundvallarnálgun.

Á myndinni með fréttinni eru formenn félaganna sem sátu óformlegan fund með Samtökum atvinnulífsins í húsnæði Ríkissáttasemjara í dag. Á myndina vantar Eið Stefánsson frá Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna.

Ályktun frá Miðstjórn Alþýðusambandsins um Palestínu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands sér sig knúna til þess öðru sinni að fordæma framferði  Ísraelshers á Gaza nú þegar árásarstríðið þeirra hefur varað í 72 daga. Á þessu tímabili hefur Ísrael virt alþjóðalög að vettugi, hafið þjóðarmorð, gereytt nauðsynlegum innviðum og hrakið nær alla íbúa Gaza á flótta á mjög takmörkuðu landssvæði sem hefur verið í herkví sl. 17 ár,  einangrað og afskipt frá umheiminum.   

Tilefni síðustu ályktunar miðstjórnar frá 1. nóvember sl. var ekki síst hjáseta Íslands við  atkvæðagreiðslu um tafarlaust vopnahlé á fundi Sameinuðu þjóðanna í lok október. Góðu heilli  hefur ríkisstjórnin snúið af þeirri leið og kosið með samskonar tillögu í vikunni sem leið.  

Undanfarna áratugi hefur ASÍ, líkt og verkalýðshreyfingin um allan heim, reglubundið og ítrekað fordæmt árásir og hernaðaraðgerðir Ísraelshers á hendur palestínsku þjóðinni, bæði á Gaza og Vesturbakkanum. Nú krefjumst við þess að íslensk stjórnvöld taki höndum saman með verkalýðshreyfingunni og rói að því öllum árum að binda enda á hið stórfellda ofbeldi og kúgun sem viðgengst hvern einasta dag í Palestínu. 

ASÍ ítrekar fyrri áskoranir á íslensk stjórnvöld um að hnitmiðuðum viðskiptaþvingunum verði beitt gegn Ísrael þar til hernámi, árásum og þjóðarmorði verði hætt. Viðskiptabann er viðurkennd aðferðafræði til að spyrna við kúgun, ofbeldi og aðskilnaðarstefnu eins og vel er þekkt t.d. frá Suður-Afríku. Ekki er síður ástæða til inngripa með sama hætti nú. Alþýðusambandið mun fyrir sitt leyti styðja við aðgerðir BDS-hreyfingarinnar á Íslandi (e. Boycott, Divestment and Sanctions).   

ASÍ fer sömuleiðis fram á að íslensk stjórnvöld skoði nú sérstaklega slit á stjórnmálasambandi við Ísrael í ljósi óhugnanlegra mannréttindabrota og stríðsglæpa sem viðgangast nú og hafa gert um langt skeið. Í þessu samhengi er vert að benda á hvernig íslensk stjórnvöld hafa í reynd  slitið stjórnmálasambandi við Rússland vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Alþýðusamband Íslands hlýtur að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld séu samkvæm sjálfum sér þegar kemur að því að meta stjórnmálasamskipti við önnur ríki. 

ASÍ hvetur jafnframt íslensk stjórnvöld til að veita palestínskum umsækjendum hæli af mannúðarástæðum umsvifalaust vernd með svipuðum einhug og gert hefur verið gagnvart flóttafólki frá Úkraínu.   

Alþýðusamband Íslands hefur ákveðið að veita fé til hjálparstarfs í Palestínu og hvetur aðildarfélög sín til að gera slíkt hið sama. 

We are looking for powerful people for boards, councils and committees

Framsynar’s line-up committee met for a convention yesterday. The role of the committee is to line up for the most confidential positions run by Framsyn for the upcoming election period 2024-2026, that is to boards, councils and committees run by the union, a total of around 80 members. That work must be completed by January 31, 2024, and it must then be advertised after the approval of Framsyn’s board and board of trustees. People who are interested to apply for confidential positions for the union are hereby invited to contact the chairman of the committee Ósk Helgadóttir.

 The e-mail address of the chairman of the committee is okkah@hotmail.com.

Við leitum að öflugu fólki í stjórnir, ráð og nefndir

Uppstillinganefnd Framsýnar kom saman til fundar í gær. Hlutverk nefndarinnar er að stilla upp í flestar trúnaðarstöður á vegum Framsýnar fyrir komandi kjörtímabil 2024-2026, það er í stjórnir, ráð og nefndir á vegum félagsins, samtals um 80 félagsmönnum. Þeirri vinnu skal lokið fyrir 31. janúar 2024 og skal hún þá auglýst eftir samþykki stjórnar og trúnaðarráðs Framsýnar. Hér með er skorað á áhugasama að hafa samband við formann nefndarinnar Ósk Helgadóttir vilji menn gefa kost á sér í trúnaðarstörf fyrir félagið sem er bæði gefandi og skemmtilegt starf í alla staði. Það er að taka þátt í að móta kjör félagsmanna og starf félagsins til framtíðar. Netfangið hjá formanni nefndarinnar er okkah@hotmail.com.

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar 27. desember

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar stéttarfélags verður haldinn miðvikudaginn 27. desember 2023 í fundarsal félagsins. Fundurinn hefst kl. 17:00.

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Kjaramál
  3. Önnur mál

Boðið verður upp á hefðbundnar veitingar og  óvæntan glaðning. Mikilvægt er að sjómenn láti sjá sig á fundinum og taki þátt í líflegum umræðum.

Stjórnin

Kallað eftir aðhaldi í hækkunum á gjaldskrám sveitarfélaga

Framsýn kallaði nýlega eftir upplýsingum frá sveitarfélögum á félagssvæðinu, það er Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Tjörneshreppi varðandi breytingar á gjaldskrám sem og öðrum þjónustugjöldum um næstu áramót.

Verkalýðshreyfingin er um þessar mundir að móta kröfugerð sem mun taka mið af hækkunum sveitarfélaga, ríkisstofnana og á almennu verðlagi í landinu sem rokið hefur upp, ekki síst síðustu mánuðina. Kjarasamningar eru almennt lausir á almenna vinnumarkaðinum í lok næsta mánaðar.

Í svari frá Tjörneshreppi kemur fram að ekki séu fyrirhugaðar hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins milli ára. Útsvarsprósentan verði áfram 14,22%.

Í svari Þingeyjarsveitar kemur fram að sveitarfélagið muni fullnýta útsvarið skv. lögum um tekjustofna sveitarfélaga eða 14,74%. Fasteignaskattur verði óbreyttur frá fyrra ári. Þá munu gjaldskrár sveitarfélagsins hækka almennt um 7,5% í samræmi við verðlagsþróun.

Í svari Norðurþings kemur fram að útsvarsprósentan verði áfram 14,74% vegna ársins 2024 og óbreytt álagning fasteignagjalda. Þá muni gjaldskrár sveitarfélagsins almennt hækka um 7,5% með nokkrum undantekningum. Gjaldskrá bókasafnsins hækkar upp í kr. 3.500,-. Gjaldskrá íþróttamannvirkja, 15% hækkun á gjaldskrá skíðasvæðis. Þá liggur fyrir að eldri borgarar fái 40% afslátt af gjaldskrá fullorðinna hjá sundlaugum Norðurþings.

Í bókun byggðaráðs þar sem erindi Framsýnar var til umræðu varðandi það að ríkið og sveitarfélög á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum gættu hófs í hækkunum á þjónustugjöldum kemur fram að byggðaráð telji þær tillögur að gjaldskrám sem nú þegar hafa verið samþykktar í sveitarstjórn hafi gert ráð fyrir hófstilltum hækkunum. Við umræðuna lagði Benóný Valur fram eftirfarandi bókun; „Tekur undir hluta af ályktun Framsýnar hvað varðar álögur á barnafjölskyldur.“

Að mati Framsýnar eru um að ræða verulegar hækkanir á gjaldskrám Þingeyjarsveitar og Norðurþings sem munu koma sér afar illa fyrir marga, ekki síst fyrir barnafjölskyldur og þá sem búa við það hlutskipti að vinna almenna verkamannavinnu þar sem mánaðarlaunin eru um kr. 400.000,- samkvæmt ákvæðum kjarasamninga á mánuði. Verkalýðshreyfingin í Íslandi hefur haft sérstakar áhyggjur af stöðu þessara hópa, ekki síst í ljósi aðstæðna í dag og boðuðum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélaga víðs vegar um landið sem og almennu verðlagi.

Vitað er að Samband ísl. sveitarfélaga ætlar ekki að skorast undan ábyrgð ef marka má bókun sambandsins til að hægt verði að tryggja frið á vinnumarkaði eftir áramótin.

Í ljósi efnahagsþróunar telur stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að mikilvægt sé að horft verði til samstillts átaks til að kveða niður verðbólguna. Komi til þess þá er sambandið tilbúið til að koma að slíku átaki.“

Að mati Framsýnar verða allir að taka höndum saman svo hægt verði að tryggja frið á vinnumarkaði, það er verkalýðshreyfingin, atvinnurekendur, sveitarfélögin, stjórnvöld, þjónustuaðilar og fjármálastofnanir. Það er besta leiðin til að ná niður verðbólgunni, vöxtum, vöruverði og tryggja stöðugleika í þjóðfélaginu.

Gleðilegur áfangi – íbúðakaup

Framsýn og Þingiðn hafa samþykkt að auka enn frekar þjónustu við félagsmenn með kaupum á tveimur orlofsíbúðum í parhúsi sem er í byggingu á Húsavík, nánar tiltekið við Hraunholt 22. Félagsmönnum utan Húsavíkur sem þurfa á gistingu að halda vegna veikinda stendur einnig til boða að fá íbúðirnar leigðar þurfi þeir að vera tímabundið nálægt Heilbrigðisstofnun Þingeyinga af heilsufarsástæðum. Ákvörðunin um kaupin var tekin á sameiginlegum félagsfundi félaganna 21. nóvember þar sem tillaga um kaup á íbúðunum var samþykkt samhljóða.

Um er að ræða 118 m2. íbúðir með geymslu.  Íbúðirnar verða full frágengnar með lóð og upphituðu bílastæði. Verðmatið per íbúð er 69.350.000,-. Áætlað er að íbúðirnar verði klárar 1. ágúst 2024. Verktakinn er Ragnar Hjaltested. Reiknað er með að skrifað verði undir samning um kaupin á allra næstu dögum. Hugmyndin er að íbúðirnar standi félagsmönnum til boða frá haustinu 2024 en um 60% félagsmanna Framsýnar búa utan Húsavíkur eða tæplega 2.000 félagsmenn, þá eru félagsmenn Þingiðnar einnig dreifir um félagssvæðið.

Jafnframt er til skoðunar að nota íbúðirnar í skiptum, hluta úr ári, fyrir önnur orlofshús í eigu annarra stéttarfélaga víða um land. Slík skipti opna á nýja og áhugaverða möguleika fyrir félagsmenn Þingiðnar og Framsýnar, þannig fengju þér aðgengi að orlofshúsum s.s. á Vestfjörðum, Vesturlandi og á Suðurlandinu í staðin fyrir orlofsíbúðirnar á Húsavík, sérstaklega yfir sumartímann.   

Félögin skoðuðu hvort þau ættu að fjárfesta í orlofshúsum í orlofsbyggðum t.d. á Suðurlandinu í stað þess að fjárfesta í orlofsíbúðum á Húsavík. Eftir skoðun var samþykkt samhljóða að fjárfesta frekar í íbúðum á Húsavík enda miklu betri nýting á slíkum íbúðum heldur en í orlofsbyggðum þar sem nýtingin á ársgrundvelli er um 12 vikur yfir sumarmánuðina. Auk þess sem það er miklu kostnaðarasamara að reka orlofshús í skipulögðum orlofsbyggðum en á Húsavík. Full ástæða er til að óska félagsmönnum Þingiðnar og Framsýnar til hamingju með kaupin á íbúðunum sem koma til með að fjölga orlofskostum félagsmanna umtalsvert á komandi árum.

Veiga, jólasveinn ársins 2023

Sigurveig Arnardóttir var valin „Jólasveinn ársins 2023“ á lokafundi stjórnar og trúnaðarráðs Framsýnar á árinu. Trúnaðarmönnum á vinnustöðum, starfsmönnum stéttarfélaganna og stjórn Framsýnar-ung var einnig boðið að sitja fundinn sem fram fór föstudaginn 8. desember. Fundarmönnum bauðst að kjósa þann félagsmann sem þykir hafa skarað fram úr í starfi Framsýnar á árinu.  Titilinn „Jólasveinn ársins 2023“ hlaut Sigurveig Arnardóttir fyrir hennar mikla og óeigingjarna starf í þágu félagsins, reyndar til margra ára. Henni hafa verið falið mörg trúnaðarstörf á vegum Framsýnar og er í dag í aðalstjórn félagsins auk þess sem hún var til margra ára trúnaðarmaður starfsmanna á Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík. Hún er í dag starfsmaður HSN sem nýlega tók yfir rekstur Hvamms að mestu. Framsýn óskar Sigurveigu til hamingju með titilinn um leið og henni eru þökkuð frábær störf í þágu félagsins. Veiga er einstakur félagi! Það var formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, sem afhendi Sigurveigu jólasveininn eftirsótta í ár.

Formanni boðið í heimsókn

Fiskeldið Haukamýri við Húsavík hefur verið starfrækt á þriðja áratug og er því ein elsta fiskeldisstöð landsins. Stöðin sérhæfir sig í bleikjueldi frá klaki til fullunnar vöru. Framleiðsla hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár með gæði og stöðugleika að leiðarljósi. Á árinu 2023 verður framleiðslan rétt yfir 400 tonn sem er aukning milli ára. Fiskeldið Haukamýri er sjúkdómalaus umhverfisvæn stöð og ekki notuð nein lyf eða bóluefni. Þá notast stöðin við hágæða fóður unnið úr hráefnum frá óerfðabreyttri framleiðslu. Haukamýri hefur því verið með alþjóðlegu gæðavottunina AquaGap frá árinu 2013. Formanni Framsýnar, Aðalsteini Árna, var boðið að skoða stöðina í gær undir leiðsögn auk þess sem hann spjallaði við starfsmenn sem flestir eru félagsmenn í Framsýn en um 16 stöðugildi eru í stöðinni. Greinilegt er að það er mikill mannauður hjá Fiskeldinu í Haukamýri enda úrvals starfsmenn við störf hjá fyrirtækinu.

Þáðu boð forseta Íslands

Í tilefni af fullveldisdeginum 1. desember bauð forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, formönnum launþegasamtaka heim á Bessastaði. Meðal þeirra voru formenn þeirra stéttarfélaga sem aðild eiga að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík, þau Aðalsteinn Árni, Hermína og Jónas sem voru afar ánægð með boðið. Guðni fór í fáeinum orðum yfir sögu Bessastaða og bauð síðan gestum að skoða staðinn. Hér má sjá frekar um fundinn.

Hressir krakkar komu við á Skrifstofu stéttarfélaganna

Frjálsíþróttakrakkar innan HSÞ komu við á Skrifstofu stéttarfélaganna en þau stefna að því að fara á Gautaborgarleikana sem fram fara í Svíþjóð í júlí 2024. Þau hafa undanfarið verið að leita að styrkjum vegna ferðarinna, hvað það varðar ætla þau að standa fyrir aðventugöngu á íþróttavellinum á Laugum fimmtudaginn 7. desember. Markmiðið er að ganga 100 km. Þeir sem vilja heita á þessa frábæru  krakka geta það með því að senda tölvupóst á netfangið frjalsar.hsth@gmail.com Að sjálfsögðu koma stéttarfélögin að því að styrkja verkefnið með áheitum.  

Vilt þú starfa fyrir Þingiðn?

Þingiðn hefur tilnefnd eftirtalda í kjörnefnd félagsins, Gunnólf Sveinsson, Davíð Þórólfsson og Kristján Gíslason. Gunnólfur er formaður nefndarinnar. Gengið var frá tilnefningunni á fundi innan félagsins fimmtudaginn 30. nóvember 2023.

„Í 21. gr. laga félagsins kemur fram að í nóvember ár hvert, skuli á félagsfundi kjósa kjörnefnd fyrir félagið. Þrír félagar skulu eiga sæti í kjörnefnd. Kjörnefnd gerir tillögur um félagsmenn í allar trúnaðarstöður félagsins fyrir næsta starfsár. Kjörnefnd er heimilt að láta fara fram könnun meðal félagsmanna, um hverjir eigi að gegna trúnaðarstöðum fyrir næsta starfsár. Könnunin skal vera skrifleg. Kjörnefnd skal hafa lokið störfum í síðasta lagi 31. janúar ár hvert. Tillögur kjörnefndar skulu vera félagsmönnum til sýnis á skrifstofu félagsins til 28. febrúar.

Heimilt er hverjum fullgildum félaga að koma með breytingartillögur um félagsmenn í einstakar trúnaðarstöður eða koma fram með nýja heildartillögu um skipan í trúnaðarstöður næsta starfsár. Breytingartillögu skal fylgja skrifleg heimild frá þeim, sem stungið er upp á og meðmæli a.m.k. 10% fullgildra félagsmanna. Nýjum heildartillögum þurfa að fylgja skrifleg meðmæli a.m.k. 20% félagsmanna. Skylt er að koma breytingartillögum til skrifstofu félagsins fyrir 1. mars.“

Skorað er á félagsmenn Þingiðnar að gefa kost á sér í trúnaðarstörf fyrir félagið. Áhugasömum er bent á að hafa samband við formann kjörnefndar Gunnólf Sveinsson. Jafnframt er hægt að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna.

Nýtt sjóðfélagayfirlit – félagsmenn lesið vel

Framsýn og Þingiðn eru aðilar að Lsj. Stapa í gegnum kjarasamninga fyrir sína félagsmenn. Afar mikilvægt er að félagsmenn fylgist vel með sínum málum er varðar ávinnslu lífeyris.

Sjóðfélagayfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá útsendingu síðasta yfirlits eru nú aðgengileg á sjóðfélagavef en yfirlitin birtast einnig í stafrænu pósthólfi á Ísland.is.

Yfirlitið mun á næstu dögum berast til þeirra sem hafa óskað eftir að fá það sent í almennum bréfapósti.

Stapi brýnir fyrir sjóðfélögum að bera iðgjaldagreiðslur saman við launaseðla. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er áríðandi að tilkynna það til sjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins.

Mikilvægt er að yfirfara hvort launagreiðandi skili inn mótframlagi í samræmi við kjarasamning. Hlutfallstala iðgjalds og mótframlags birtist fyrir aftan nafn launagreiðanda á yfirlitunum. Ef sjóðfélagi er ekki viss um hvert mótframlagið á að vera er rétt að hafa samband við viðeigandi stéttarfélag.

Í spurt og svarað höfum við tekið saman helstu spurningar og svör.

Stapi gaf út nýtt fréttabréf á dögunum en í því er meðal annars fjallað um breytingar á útsendingu yfirlita, réttindakerfi Stapa, kostnað vörsluaðila séreignarsparnaðar, ávöxtun o.fl.

Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef frekari upplýsinga er óskað. Hægt er að senda beiðni á stapi@stapi.is eða hafa samband við okkur í síma 460-4500 til að fá aðstoð.

Lægri tekjur og minna atvinnuöryggi hjá hinsegin fólki

Atvinnutekjur hinsegin karla eru 30% lægri en gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli en hverfandi munur mælist hjá hinsegin konum. Aðeins um helmingur hinsegin fólks á vinnumarkaði er að fullu opið með hinseginleika sinn á vinnustöðum og tæplega 60% segir að almennt halli á kjör þeirra og réttindi á vinnumarkaði.

Sterkt ákall er um aukna umfjöllun um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar um hinsegin vinnumarkað sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB og könnun BHM um hinsegin vinnumarkaðHelstu niðurstöður hafa verið teknar saman í stutt yfirlit sem má sjá hér.

Nálgast má gögnin hér:

Stjórn Þingiðnar fundar á fimmtudaginn

Stjórn Þingiðnar kemur saman til fundar næsta fimmtudag í fundarsal félagsins. Dagskrá fundarins er meðfylgjandi þessari frétt. Nokkur stórmál eru á dagskrá fundarins s.s. komandi kjaraviðræður við SA, íbúðakaup og flugsamgöngur milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Þá þarf að kjósa kjörnefnd félagsins sem ætlað er að stilla upp í trúnaðarstöður í félaginu til næstu tveggja ára frá dagsetningu næsta aðalfundar að telja sem væntanlega verður haldinn í apríl/maí 2024. Hér með er skorað á áhugasama félagsmenn að gefa kost á sér í trúnaðarstöður innan Þingiðnar.

Dagskrá:

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Inntaka nýrra félaga
  3. Hrunabúð
  4. Íbúðakaup
  5. Flugmál Hús-Rvk
  6. Kjarasamningar
  7. Lagabreytingar félagsins
  8. Starfsemi Virk
  9. Heimsókn á Bessastaði
  10. Grindavík-húsnæðiskortur
  11.  Kjörnefnd félagsins
  12.  Önnur mál

Flogið áfram til Húsavíkur 

Samningar hafa náðst milli Flugfélagsins Ernis og Vegagerðarinnar, um áframhaldandi flug til Húsavíkur næstu 3-4 mánuðina. Búið er að opna fyrir sölu á flugi til loka febrúar, hið minnsta. Flogið verður fimm sinnum í viku. Ljóst er að full þörf er á þessum samgöngumáta inn á svæðið hvort sem er fyrir almenning, fyrirtæki, stofnanir eða ferðaþjónustu. Flugfélagið Ernir vill koma því á framfæri að fólk getur séð flugáætlunina og jafnframt bókað sig í flug á ernir.is. Á næstu vikum og mánuðum mun svo koma í ljós hvort að þjónustustigið verði tryggt til lengri tíma. Framsýn hefur barist fyrir því að fluginu verði viðhaldið milli Reykjavíkur og Húsavíkur, svo verður áfram að sögn formanns félagsins Aðalsteins Árna Baldurssonar.

Ályktað um yfirtöku SÍS á starfsmatinu

Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB fór fram í Keflavík fyrir helgina. Hermína Hreiðarsdóttir, Fanney Hreinsdóttir og Berglind Erlingsdóttir voru fulltrúar STH á landsfundinum sem eru á meðfylgjandi mynd, reyndar vantar Hermínu á myndina. Á fundinum var meðal annars rætt um reynsluna af kjarasamningaviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) síðastliðið vor, sameiginlegu verkfalli og niðurstöðu samninganna. Rætt var um hvað gekk vel í þeirri baráttu og hvað mætti læra af fenginni reynslu. Einnig voru innri mál rædd eins og umhverfi Kötlu-félagsmannasjóðs og farið yfir stöðu mannauðssjóða félaganna.

Sérstaklegar var fjallað um starfsmatskerfið SAMSTARF sem bæjarstarfsmannafélögin ásamt Sameyki eru aðilar að. Starfmatskerfið er nýtt til að tryggja eftir bestu getu jafnræði í launasetningu og meta virði starfa til launa. Talsverð óánægja er meðal bæjarstarfsmannafélaganna vegna framgöngu SÍS innan starfsmatskerfisins.

Ljóst er að í komandi kjarasamningum munu stéttarfélögin leggja áherslu á að sameiginleg stjórn verði sett yfir kerfið, þar sem samtök launafólks annars vegar og Reykjavíkurborg og SÍS hins vegar ættu sína fulltrúa í jöfnu hlutfalli. Fundurinn samþykkti ályktun þar að lútandi sem sjá má hér.