„Utanvegahlaup ársins 2014″

Hlaup.is hefur nú tekið saman einkunnir sem hlauparar gáfu hlaupum ársins 2014. Hlaupunum er skipt niður í tvo flokka, götuhlaup og utanvegahlaup. Hæsta einkunn í hvorum flokki fyrir sig skilar titlinum „Götuhlaup ársins 2014“ og „Utanvegahlaup ársins 2014“. Að baki valinu eru rétt rúmlega 1400 einkunnir þar sem hinum ýmsum þáttum hlaupanna eru gefin stig. Read more „„Utanvegahlaup ársins 2014″“

Staðan metin – Heimsókn til formanns VA

Formenn Framsýnar og Verkalýðsfélags Akraness hittust í vikunni og fóru yfir stöðuna í kjaramálum, orlofsmálum og verkalýðsmálum almennt. Ekki þarf að taka fram að fundurinn hafi verið vinsamlegur þar sem mjög gott samstarf hefur verið milli félaganna í gegnum tíðina sem tekið hefur verið eftir. Þessi fundur var enginn undantekning frá því. Read more „Staðan metin – Heimsókn til formanns VA“

“Grundvallaratriði að fólk geti lifað af dagvinnulaunum”

„Það þarf nauðsynlega að hækka lægstu launin og einnig leggjum við áherslu á að launatöflurnar verði endurskoðaðar, þannig að meira tillit verði tekið til starfsaldurs og álags. Fólk með tuttugu ára starfsreynslu er til dæmis rétt fyrir ofan byrjunarlaun, munurinn er allt of lítill,“ segir Jóna Matthíasdóttir formaður Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar stéttarfélags. Read more „“Grundvallaratriði að fólk geti lifað af dagvinnulaunum”“

Um 3,4 milljónum úthlutað til félagsmanna

Stjórn Sjúkrasjóðs Framsýnar kom saman fyrir helgina og tók fyrir umsóknir félagsmanna um styrki úr sjúkrasjóði félagsins fyrir janúar mánuð. Um er að ræða umsóknir um sjúkradagpeninga vegna veikinda, fæðingarstyrki, útfararstyrki og styrki vegna heilsuræktar, sjúkraþjálfunar, gleraugnakaupa og svo framvegis og framvegis m.v. reglugerð sjóðsins. Read more „Um 3,4 milljónum úthlutað til félagsmanna“

55 þúsund króna skattleysi vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og annarrar endurhæfingar.

Rétt er að vekja athygli félagsmanna stéttarfélaganna á því að 55.000 króna skattleysi er vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og annarar endurhæfingar. Töluvert er um að félagsmenn fái styrki úr sjúkra- og styrktarsjóðum félaganna og því gott að vita af þessari reglu. Sjá frekar: Read more „55 þúsund króna skattleysi vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og annarrar endurhæfingar.“

Mikill einhugur á fundi samninganefndar SGS – kröfugerð samþykkt

Það er óhætt að segja að það hafi verið mikill einhugur á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands í Reykjavík í gær. Innan sambandsins eru 19 stéttarfélög. Að kröfugerðinni standa 16 aðildarfélög sambandsins þar sem svokölluð Flóabandalagsfélög (félögin á höfuðborgarsvæðinu innan SGS) standa sér. Read more „Mikill einhugur á fundi samninganefndar SGS – kröfugerð samþykkt“