Aðalfundur Þingiðnar 16. maí 2018- fundarboð

Aðalfundur Þingiðnar verður haldinn miðvikudaginn 16. maí kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna.

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  • Skýrsla stjórnar
  • Ársreikningar
  • Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
  • Lýst kjöri í trúnaðarstöður í félaginu
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun árgjalda
  • Laun stjórnar
  • Kosning löggilts endurskoðanda
  1. Fræðslusjóður Þingiðnar
  • Tillaga liggur fyrir fundinum um að stofna Fræðslusjóð Þingiðnar með stofnframlagi frá félaginu og framlagi félagsmanna upp á 0,3% af launum sem greiðist með félagsgjaldi. Sjóðnum er ætlað að styrkja félagsmenn til þátttöku í námskeiðum.
  1. Kjaramál

 Önnur mál

Skorað er á félagsmenn að taka þátt í fundinum þar sem ræða á kjaramál enda kjarasamningar lausir um næstu áramót og stofnun á öflugum fræðslusjóði fyrir félagsmenn. Góðar veitingar verða í boði.

Húsavík 16. apríl 2018

Stjórn Þingiðnar  

 

 

Athygli er vakin á 24. grein laga félagsins – Ráðstöfun úr sjóðum félagsins:
Tillögur stjórnar, trúnaðarmannaráðs og félagsmanna um meiriháttar ráðstöfun úr sjóðum félagsins sem bornar eru upp á aðal- eða félagsfundi til samþykktar, skal lýst í fundarboði. Berist slík tillaga eftir fundarboð, er hún tæk fyrir fundinn hafi hún borist stjórn félagsins með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir boðaðan fund. Skal þá stjórn félagsins fjalla um tillöguna og láta hana liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn í a.m.k. 5 virka daga.

 

Deila á