PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík ræður yfirmenn

Hafsteinn Viktorsson hefur verið ráðinn sem forstjóri PCC BakkiSilicon frá og með mars 2017. Hafsteinn mun þó koma til starfa fyrr og starfa sem framkvæmdastjóri tæknisviðs frá júní 2016. Hafsteinn er viðhaldsfræðingur frá St. Louis University að mennt og á árunum 2005-2010 starfaði hann hjá Alcoa Fjarðaráli. Fyrst sem framkvæmdastjóri áreiðanleika- og raforkuteymis 2005-2008, árin 2008-2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri heilsu- og öryggisteymis og á árunum 2008-2010 sem framkvæmdastjóri framleiðslu ásamt því að vera staðgengill forstjóra. Síðustu ár hefur Hafsteinn starfað að fjárfestingaverkefnum fyrir móðurfélag Alcoa Fjarðaráls. Áður

starfaði Hafsteinn hjá Icelandair. Hafsteinn er kvæntur Borghildi Ísfeld Magnúsdóttur og eiga þau 2 börn.

Jökull Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá PCC BakkiSilicon og mun hann hefja störf í mars 2016. Jökull er verkfræðingur að mennt og hefur hann undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri hjá Rio Tinto Alcan. Fyrst sem leiðtogi kerreksturs árin 2004-2007 og síðan sem framkvæmdastjóri kerskála árin 2007-2012 og frá árinu 2012 sem framkvæmdastjóri Steypuskál. Áður starfaði Jökull fyrir Marel á Íslandi. Jökull er kvæntur Ástu Sigfúsdóttur og eiga þau 4 börn.

Talent ráðningar&ráðgjöf veitti ráðgjöf við ráðningarnar.Hafsteinn Viktorsson hefur verið ráðinn sem forstjóri PCC BakkiSilicon frá og með mars 2017.

Jökull Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá PCC BakkiSilicon og mun hann hefja störf í mars 2016

Deila á