Styrktarsjóður BSRB -frestur umsókna og fylgigagna 2015

Styrktarsjóður BSRB vill benda félagsmönnum á að til þess að geta fengið styrk vegna ársins 2015 er nauðsynlega að skila inn umsóknum og fylgigögnum í síðasta lagi föstudaginn 18. desember nk. Þetta á bæði við um þá sem hafa sent inn umsókn á netinu og eiga eftir að skila inn fylgigögn og einnig þá sem eiga eftir að sækja um styrk hjá sjóðnum. Komi umsóknir eftir 18. desember nk. munu umsóknir falla yfir á rétt ársins 2016. Að gefnu tilefni benda starfsmenn sjóðsins á að skila þarf frumriti reikninga til sjóðsins, reikningar sendir með tölvupósti teljast ekki gildir. Kveðja, Starfsfólk Styrktarsjóðs BSRB

Deila á