Eru verðmætin í jafnréttinu falin?

Jafnréttisnefnd ASI stóð þann 12. nóvember fyrir ráðstefnu um jafnréttismál og var hún haldin á Icelander Hotel Natura í Reykjavík.Yfirskrift ráðstefnunnar var Vinnumarkaðurinn og jafnréttisbaráttan – eru verðmætin í jafnréttinu falin? Ráðstefnan var öllum opin og þar áhugaverðir fluttir fyrirlestrar um hin ýmsu málefni er lúta að þeim málaflokki. Fyrirlestrunum var gerður góður rómur en ráðstefnan hún haldin í tilefni að því að í ár fagna íslenskar konur 100 ára kosningarétti. Fulltrúi Framsýnar á ráðstefnunni var varaformaður Framsýnar Ósk Helgadóttir. Hér má sjá dagskrá ráðstefnunar:

10:00 Setning

Signý Jóhannesdóttir, formaður jafnréttisnefndar ASÍ

Ávarp

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

Fæðingarorlof – árangur í glatkistuna?

Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við HÍ

Árekstrar vinnu og heimilis í hruni og endurreisn

Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi við HÍ

Rödd úr raunveruleikanum

Valgeir Sveinn Eyþórsson, Afl Starfsgreinafélag

Kynbundið náms- og starfsval

Sif Einarsdóttir, prófessor við HÍ

12:00 Hádegisverður

12:45 Sjálfmynd stelpna

Kristín Tómasdóttir, rithöfundur

Launajafnrétti og jafnlaunastaðall

Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ

Er jafnrétti í augsýn?

Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR

Staða kynjanna í Fjallabyggð fyrir og eftir Héðinsfjarðargöng

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, félagsfræðingur við HA

14:30 Kaffihlé

14:45 Er verkalýðshreyfingin í raun fyrir ungt fólk á vinnumarkaði?

Hrönn Jónsdóttir, Grafía, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum

Á fólk að segja sig til sveitar?

Erna Indriðadóttir, ritstjóri Lifðu núna

Snjókorn

Valgerður Bjarnadóttir, hugsjónakona

Deila á