Viltu komast á þing?

Þing Alþýðusambands Norðurlands verður haldið að Illugastöðum í Fnjóskadal 2.-3. október 2015 (föstudag til laugardags). Ef þú hefur áhuga fyrir því að komast á þingið og ert fullgildur félagsmaður í Framsýn er þér velkomið að gefa kost á þér sem fulltrúi félagsins. Vinsamlegast hafið samband við formann félagsins, Aðalstein Árna Baldursson fyrir næsta fimmtudag. Dagskrá þingsins er eftirfarandi:

Dagskrá 34. þings
Alþýðusambands Norðurlands
Föstudaginn 2. október 2015

09:30 Setning þingsins

Skýrsla stjórnar

Ársreikningar 2013 og 2014

Skipun húsnæðismálanefndar og nefndar um vísitölu neysluverðs.

Skipun kjörbréfanefndar

10:00 Staða og horfur í húsnæðismálum.

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra

Fyrirspurnir og umræður

10:50 Kaffihlé

11:00 Hefur fjölgun erlendra ferðamanna áhrif á vísitölu neysluverðs?

Hagfræðingur frá ASÍ

11:30 Marínó G. Njálsson master í verkfræði og aðgerðarannsóknum

Fyrirspurnir og umræður

12:10 Hvað er Genfarskólinn?

Eyrún Björk Valsdóttir deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ

Fyrirspurnir og umræður

12:40 Hádegisverður (súpa og brauð)

13:00 Umræða um húsnæðismál

13:10 Umræða um vísitölu neysluverðs

13:20 Önnur mál

13:30 Nefndarfundir

15:10 Þeistareykir

Rútuferð þar sem LNS Saga verktakar taka á móti okkur. ATH: um 4 tíma ferð.

20:30 Kvöldverður og kvöldvaka, gaman saman

Laugardaginn 3. október 2015

09:00 Morgunverður

10:00 Afgreiðsla tillagna frá nefndum og stjórn

Afgreiðsla tillagna húsnæðismálanefndar og nefndar um vísitölu neysluverðs

10:45 Fjárhagsáætlun 2015 – 2016

11:00 Breyting á reglugerð fyrir menningar- og fræðslusjóð AN

11:15 Kosningar

11:30 Önnur mál

12:00 Þingslit

Hádegisverður

Þingiðn og Framsýn eiga rétt á nokkrum fulltúum á þing Alþýðusambands Norðurlands sem haldið verður um næstu helgi.

Deila á