Mikil samstaða á fundi Framsýnar í kvöld

Samninganefnd Framsýnar sem skipuð er stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins kom saman til fundar í kvöld. Mikill og góður baráttuhugur var á fundinum og ljóst að félagsmenn eru tilbúnir í átök til að fylgja eftir sanngjörnum kröfum sem Samtök atvinnulífsins hafa þegar hafnað. Fundurinn samþykkti að senda frá sér svohljóðandi ályktun:

Ályktun um kjaramál

„Framsýn, stéttarfélag skorar á félagsmenn og verkafólk um land allt er fellur undir kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins að greiða atkvæði með boðun verkfalls, en atkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 23. mars.

Samstaða verkafólks er lykillinn að betri kjörum og réttlæti. Látum ekki Samtök atvinnulífsins komast upp með málflutning sem felur í sér að ekki sé svigrúm til launahækkana hjá þeim tekjulægstu og allt fari fjandans til verði orðið við sanngjörnum kröfum Starfsgreinasambandsins. Það er á sama tíma og tug-prósenta hækkanir flæða inn í launaumslög tekjuhæstu hópana í landinu án þess að varað sé við því sérstaklega.

Með því að samþykkja verkfallsaðgerðir er íslenskt verkafólk að senda skýr skilaboð um að það geri eðlilegt tilkall til þess að fá sinn skerf af þjóðarkökunni og hafnar með skýrum hætti brauðmolavæðingu Samtaka atvinnulífsins.

Látum samstöðuna tala sínu máli, þannig náum við best árangi í baráttunni fyrir bættum kjörum verkafólks.“

Framsýn, stéttarfélag skorar á félagsmenn og verkafólk um land allt er fellur undir kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins að greiða atkvæði með boðun verkfalls, en atkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 23. mars. Ályktun þess efnis var samþykkt í kvöld á fundi samninganefndar félagsins.

Deila á