SGS ályktar um vaxta- og kjaramál

Formannafundur á vegum Starfsgreinasambands Íslands fór fram í gær. Framsýn og Verklaýðsfélag Þórshafnar eiga aðild að sambandinu. Á fundinum var ályktað um vaxta- og kjaramál. Sjá ályktun:

Formannafundur SGS tekur undir gagnrýni um mikinn og ólíðandi vaxtamun viðskiptabankanna á Íslandi. Það liggur fyrir að mörg heimili og fyrirtæki hérlendis berjast í bökkum vegna þeirra okurvaxta sem þeim standa til boða.

Það liggur líka fyrir að sá vaxtamunur sem hér ríkir þekkist varla í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. Þessi mikli vaxtamunur og okurvextir leggjast þungt á skuldsetta alþýðu þessa lands.

Bankakerfið á Íslandi olli íslensku samfélagi gríðarlegum skaða og það er algerlega ótækt að bönkunum, sem yfirtóku lánasöfn almennings og fyrirtækja með miklum afslætti eftir hrun, skuli í skjóli fákeppninnar leyfast að níðast áfram á almenningi með okurvöxtum og gjaldskrárhækkunum.

Fundurinn fagnar því að forsætisráðherra skuli standa með launafólki í þessu mikla hagsmunamáli sem vaxtakjör fjármálakerfisins er, ásamt því að taka undir kröfur SGS vegna komandi kjarasamninga, enda eru hér um brýnustu hagsmunamál alþýðunnar að ræða.

Fundurinn skorar á ríkisstjórnina, Alþingi og fjármálakerfið í heild sinni að taka höndum saman um að skapa hér eðlilegt og sanngjarnt lánaumhverfi þar sem vextir og önnur kjör fjármálakerfisins verði eins og í siðmenntuðum löndum.Formannafundur SGS samþykkti að senda frá sér ályktun um vaxta- og kjaramál í gær.

Deila á