Vinnumálastofnun lokar á Húsavík – óskiljanleg vinnubrögð

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti að senda frá sér ályktun í dag vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar um að loka þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík þann 1. desember nk. Starfsmanni Vinnumálastofnunar var sagt upp í dag en hann hefur verið í 40% starfi. Mikil óánægja er með boðaða lokun og munu fulltrúar Framsýnar funda með sveitarstjóra Norðurþings á morgun auk þess sem óskað verður eftir fundi með Félags- og húsnæðismálaráðherra vegna málsins.
Ályktun
Um lokun Vinnumálastofnunar á Húsavík
Framsýn, stéttarfélag krefst þess að Vinnumálastofnun dragi þegar í stað til baka boðaða lokun á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík frá og með 1. desember 2014. Þá vekur furðu að stofnunin skyldi ekki sjá ástæðu til að eiga samráð við stéttarfélögin og sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum um málið áður en þessi vanhugsaða ákvörðun var tekin.
Greinagerð:
Vinnumálastofnun hefur í tilkynningu til Framsýnar ákveðið að leggja niður starfsemi Vinnumálastofnunar á Húsavík. Starfsmanni sem gegnt hefur 40% starfi á vegum stofnunarinnar á Húsavík hefur verið sagt upp störfum. Áður var um fullt stöðugildi að ræða.
Þjónusta Vinnumálastofnunar er gríðarlega mikilvæg í Þingeyjarsýslum. Stofnunin heldur utan um skráð atvinnuleysi á svæðinu og er ætlað að vinna að úrræðum fyrir atvinnuleitendur í samráði við þá. Jafnframt gegnir stofnunin mikilvægu hlutverki í atvinnumálum fatlaðra auk þess að þjónusta verðandi foreldra í gegnum fæðingarorlofssjóð.
Það vekur furðu og reyndar undrun að á sama tíma og stjórnvöld hreykja sér að flutningi Fiskistofu til Akureyrar með það að markmiði að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni skuli sömu stjórnvöld vinna markvisst að því að leggja niður opinber störf á öðrum stöðum á landsbyggðinni. Þetta er skrýtin stjórnsýsla svo ekki sé meira sagt og kallar á harða gagnrýni.
Soffía Gísladóttir forstöðumaður VMST á Norðurlandi eystra átti fund með formanni Framsýnar í dag þar sem farið farið yfir ákvörðun stofnunarinnar að loka á Húsavík. Við það tækifæri kom formaður Framsýnar óánægju félagsins á framfæri við stofnunina.
Deila á