Opinn áhugaverður fundur á morgun, miðvikudag

Eins og fram hefur komið á heimasíðunni þá stendur Framsýn fyrir opnum fundi um neysluviðmið á Íslandi. Fundurinn verður haldinn á morgun,miðvikudag 23. apríl  í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26. Fundurinn hefst kl. 20:00. Gestur fundarins verður Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur hjá Velferðarráðuneytinu. 

Íslensk neysluviðmið: Frummælandi, Sigríður Jónsdóttir Velferðarráðuneytinu.
Kynning á neysluviðmiðunum, uppbyggingu þeirra og þróun. 

Eftir framsögu Sigríðar verður opnað fyrir umræður og fyrirspurnir. Allir velkomnir.

Deila á