Félagsmenn stéttarfélaganna sem aðild eiga að Skrifstofu stéttarfélaganna hækka almennt um 3,25% þann 1. febrúar 2013 auk þess sem reiknitölur og föst álög hækka um 3,25%, en þó ekki lægra en um 9 kr. Athygli er vakin á því að almennir kauptaxtar hækka hins vegar um ákveðna upphæð kr. 11.000,-. Þá verða lágmarkstekjur fyrir fullt starf kr. 204.000,- á mánuði. Rétt er að taka fram að starfsmenn sveitarfélaga hækka hins vegar 1. mars 2013. Frá sama tíma hækka stafsmenn ríkisstofnana um kr. 11.000 að lágmarki eða um 3,25% allt eftir því, eftir hvaða launakerfi þeir starfa. Unnið er að því að setja nýju taxtana inn á heimasíðu stéttarfélaganna. Auk þess er skorað á félagsmenn Framsýnar, Þingiðnar og Starfsmannafélags Húsavíkur að hafa samband ef frekari upplýsinga er þörf.
Hér má sjá kauptaxta sem gilda fyrir þá sem vinna eftir kjarasamningi Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins. Kauptaxtana má nálgast hér.
Til baka

