Stofnanasamningur endurskoðaður

Starfsgreinasambandið sem Framsýn á aðild að og Skógrækt ríkisins hafa gert með sér stofnanasamning um forsendur og reglur um röðun starfa við stofnunina, í samræmi við ákvæði kjarasamnings SGS og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, frá 1. júní 2011. Samningurinn nær til allra starfsmanna hjá Skógrækt ríkisins sem starfa og njóta ráðningarkjara samkvæmt kjarasamningi SGS. Nálgast mér samninginn hér en hann nær til félagsmanna Framsýnar sem starfa á Vöglum við skógrækt.

Deila á