Áríðandi sjóðsfélagafundur í Stapa, lífeyrissjóði

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs boðar til sjóðfélagafundar í samstarfi við Framsýn í fundarsal stéttarfélaganna að  Garðarsbraut 26 Húsavík miðvikudaginn 29. febrúar n.k. kl. 20:00

Tilefni fundarins er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um efni skýrslunnar.

Skýrsluna má finna í heild sinni á heimasíðu sjóðsins www.stapi.is

Stapi, lífeyrissjóður
Framsýn, stéttarfélag

Deila á